Lífið

Það jafnast enginn húmor á við breskan húmor

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Ágústa Eva Erlendsdóttir Ágústa Eva Erlendsdóttir
Ágústa Eva Erlendsdóttir Ágústa Eva Erlendsdóttir
Breski grínleikarinn David Walliams, sem er þekktastur hér á landi fyrir leik sinn í gamanþáttunum Little Britain, ásamt því að hafa haslað sér völl sem einn af aðaldómurum Britain's Got Talent, er einn af þeim sem íslenska dómnefndin lítur upp til.



„Það skiptir miklu máli að hafa gott innsæi þegar kemur að því að dæma keppendur. Ég á mér ekki neina eina fyrirmynd, það sem ég ákvað þegar ég tók þetta verkefni að mér var að vera ég sjálf. Það sem ég er að leita að er að viðkomandi geti vaxið og raunverulega slegið í gegn. Það skiptir máli að finna það sérstaka sem er einkennandi fyrir keppanda,“ segir Marta María spurð að því hvernig hún komi til með að undirbúa sig sem dómari í Ísland Got Talent.

David Walliams er mikill húmoristi.Vísir/Getty
„Hann er alveg óvenjulega skemmtilegur, hann er einstaklega mikill húmoristi og mjög góður leikari. Það er ótrúlega gaman að fylgjast með honum, hann er sá dómari sem kemur manni alltaf á óvart. Það er alveg á hreinu að það jafnast enginn húmor á við breskan húmor nema kannski hinn íslenski,“ segir Jakob Frímann spurður um hver sé fyrirmynd hans í dómarasæti Got Talent þáttanna.

 

„Dómarahópurinn nær vel saman og þetta er virkilega skemmtilegur hópur, við erum að klára allar upptökur þessa dagana og það gengur mjög vel. Hvað varðar fyrirmynd þá dæmi ég algjörlega eftir persónulegum smekk. En ég er sammála því að David Walliams er flottur, hann er ekkert að fíflast og er frábær í sínu hlutverki,“ segir Dr. Gunni spenntur fyrir dómarahlutverkinu.

 

„Ég er alveg sammála strákunum, David Walliams er rosalega skemmtilegur, það sem hann segir kemur allt frá hjartanu og það er nákvæmlega þannig sem ég tel dómara eiga að vinna. Mín undirbúningsvinna er að vera í góðu skapi, maður veit aldrei hverju maður á von á. Hópurinn er mjög sterkur og ótrúlega mikið af hæfileikaríku fólki sem tekur þátt, þetta kemur manni allt á óvart,“ segir Águsta Eva spennt fyrir keppninni.


Tengdar fréttir

Marta María og Dr. Gunni verða dómarar í Ísland Got Talent

Búið er að ákveða að Marta María Jónasdóttir, ritstjóri Smartlands, Dr. Gunni og Jakob Frímann Magnússon, Stuðmaður, verði dómarar í þriðju þáttaröðinni í hæfileikakeppninni Ísland Got Talent í vetur.

Alda Dís með útgáfutónleika í Hörpu

Á fimmtudaginn mun Alda Dís halda útgáfutónleika í Hörpunni og spila þar með þrettán manna bandi. Alda Dís bar sigur úr býtum í síðustu keppninni af Ísland Got Talent sem var á Stöð 2 í vor.

Tekur sæti í dómnefnd Ísland Got Talent

Hinn margreyndi tónlistarmaður og Stuðmaður Jakob Frímann Magnússon segir að það sé pressa að taka við af Bubba Morthens, sem dómari í Ísland Got Talent.

Ágústa Eva dómari í Ísland Got Talent

Ágústa Eva Erlendsdóttir bætist í dómarahópinn í Ísland Got Talent. Hún segist vera hrifnæm en með glettilega mikið af pönki í sér, þannig að það sé aldrei að vita hvort hún noti gullhnappinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×