Rannsaka hvort Síminn hafi brotið lög sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 6. janúar 2016 17:07 Deilur fjarskiptarisanna hafa staðið yfir í nokkurn tíma. vísir
Póst- og fjarskiptastofnun hyggst með ítarlegum hætti rannsaka hvort Síminn hafi brotið lög með því að hafa beint viðskiptavinum sínum að eigin fjarskiptaneti. Það er gert að beiðni Vodafone og stofnað hefur verið sérstakt mál sem snýr að deilu fjarskiptarisanna tveggja. Þessi ákvörðun var tekin í kjölfar þess sem Síminn fór fram á að stofnunin myndi skera úr um hvort þjónustuhættir hjá Vodafone er varða Tímavél og Frelsi teljist til línulegrar eða ólínulegrar myndmiðlunar. Póst- og fjarskiptastofnun tók þó ekki afstöðu til málsins og sagði þessar deilur eiga heima fyrir dómstólum. „Ljóst er að ákvörðun um þetta álitamál þarf að taka að vel athuguðu máli og í kjölfar ítarlegrar rannsóknar, auk þess sem veita þarf aðilum færu á að tjá sig og koma sjónarmiðum sínum að áður en slík ákvörðun er tekin. Áður en slík ákvörðun yrði tekin þyrfti að mati PFS ennfremur að vera fullreynt hvort samningar geti tekist á milli félaganna um hina hliðruðu(ólínulegu) dagskrá,“ segir í ákvörðun stofnunarinnar. Ljóst sé að meðferð málsins geti tekið nokkurn tíma, nái aðilar ekki sáttum. Þá fór Síminn fram á að lögbann yrði sett á Vodafone vegna dreifingar á sjónvarpsefni Skjás eins eftir að rekstrarformi stöðvarinnar var breytt þannig að áskrifendur geti horft endurgjaldslaust á dagskrána í línulegri dagskrá. Það var samþykkt af sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu um miðjan desember. Lokað var fyrir sjónvarpsstöðvar hjá viðskiptavinum Vodafone sem nýttu sér áskriftapakka Skjás heims á vegum Símans nú á mánudag. Forsvarsmenn Símans segjast hafa gefið Vodafone hálfs árs fyrirvara, en hvorugur aðili lét viðskiptavini vita af fyrirhuguðum breytingum. Vodafone sendi svo frá sér tilkynningu þess efnis í gær. Deilur fjarskiptarisanna hafa staðið yfir í nokkurn tíma. Í mars síðastliðnum krafði Síminn Vodafone um fjögur hundruð milljónir króna vegna meintrar ólögmætrar notkunar á vörumerkinu Tímaflakk. Nokkrum dögum síðar breytti Vodafone heitinu á Tímaflakki í Tímavél en málið er þó enn í ferli.
Tengdar fréttir Telja sig mega miðla efni SkjásEins í Tímavél og Frelsi í sjónvarpi Vodafone Fjarskipti hf. telja aðgerðir Símans, sem markaðsráðandi aðili á fjarskiptamarkaði, hamli samkeppni og séu í andstöðu við bæði samkeppnis-og fjölmiðlalög. 16. desember 2015 13:09 Fjarskiptarisar deila: Stöðvar Símans teknar úr sambandi hjá Vodafone Viðskiptavinir voru ekki látnir vita af fyrirhugaðri lokun stöðvanna. Vodafone og Síminn vísa hvor á annan í þeim efnum. 6. janúar 2016 12:20 Lögbann sett á Vodafone vegna dreifingar á efni SkjásEins Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur sett lögbann á Vodafone vegna upptöku og ólínulegar miðlunar fyrirtækisins á sjónvarpsefni SkjásEins. 16. desember 2015 12:05 Tímaflakk fari fyrir dómstóla Deila Vodafone og Símans um tímaflakk á heima fyrir dómstólum en ekki hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Stofnunin telur það ekki vera innan valdsviðs síns að úrskurða um málið og vísaði frá kæru Símans. Deilan snýr einna helst að dreifingu Vodafone á hliðruðu áhorfi á SkjáEinum sem Síminn fékk lögbann á í vikunni. 19. desember 2015 06:00 Mest lesið Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Thule lækkar í prósentu Neytendur Fleiri fréttir Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sjá meira
Telja sig mega miðla efni SkjásEins í Tímavél og Frelsi í sjónvarpi Vodafone Fjarskipti hf. telja aðgerðir Símans, sem markaðsráðandi aðili á fjarskiptamarkaði, hamli samkeppni og séu í andstöðu við bæði samkeppnis-og fjölmiðlalög. 16. desember 2015 13:09
Fjarskiptarisar deila: Stöðvar Símans teknar úr sambandi hjá Vodafone Viðskiptavinir voru ekki látnir vita af fyrirhugaðri lokun stöðvanna. Vodafone og Síminn vísa hvor á annan í þeim efnum. 6. janúar 2016 12:20
Lögbann sett á Vodafone vegna dreifingar á efni SkjásEins Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur sett lögbann á Vodafone vegna upptöku og ólínulegar miðlunar fyrirtækisins á sjónvarpsefni SkjásEins. 16. desember 2015 12:05
Tímaflakk fari fyrir dómstóla Deila Vodafone og Símans um tímaflakk á heima fyrir dómstólum en ekki hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Stofnunin telur það ekki vera innan valdsviðs síns að úrskurða um málið og vísaði frá kæru Símans. Deilan snýr einna helst að dreifingu Vodafone á hliðruðu áhorfi á SkjáEinum sem Síminn fékk lögbann á í vikunni. 19. desember 2015 06:00