Fari ekki í fangelsi fyrir fíkniefnaneyslu Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. ágúst 2016 07:00 Þeim sem sprauta vímuefnum í æð verði tryggð gjaldfrjáls nálaskiptaþjónusta. Vísir/Anton
Refsing fyrir vörslu og meðferð á neysluskömmtum ólöglegra vímuefna verður bundin við sektir, nái tillögur starfshóps heilbrigðisráðherra fram að ganga. Hópurinn hafði það hlutverk að móta stefnu til að draga úr skaðlegum áhrifum vímuefnaneyslu. Nefndin segir í rökstuðningi með tillögunni að um árabil hafi sú venja mótast við framkvæmd laga um ávana- og fíkniefni að þeim sé lokið með sekt þegar talið er víst að magn haldlagðra efna sé til einkaneyslu. Engu að síður er enn gert ráð fyrir því í lögum að hægt sé að dæma menn í fangelsi fyrir slík brot. Starfshópurinn leggur til að lögum verði breytt svo þau verði í takt við það hvernig þeim hefur verið framfylgt. Hópurinn tekur fram að sérstaklega þurfi að fylgjast með hvort breytingin leiði til breyttra söluaðferða og dreifingar vímuefna og áhættumat verði gert á áhrifum lagabreytingarinnar. Fulltrúi Ríkislögreglustjóra í starfshópnum leggst gegn breytingunni. Þá leggur starfshópurinn til að brot fyrir vörslu á fíkniefnum fari ekki á sakaskrá ef sektin við brotinu er lægri en 100 þúsund krónur. Tillögur hópsins snúa ekki einungis að því að breyta lögum til þess að draga úr refsinæmi vímuefnaneyslu. Þar eru líka tillögur um þjónustu og úrræði sem hafa þann tilgang að draga úr heilsufarslegum, félagslegum og efnahagslegum afleiðingum notkunar löglegra og ólöglegra vímuefna án þess endilega að draga úr vímuefnanotkun. Þá eru líka tillögur um að efla meðferðarúrræði fyrir fólk í mesta vandanum og tillögur til að viðhalda þeim árangri sem náðst hefur í forvarnarstarfi. Starfshópurinn, undir forystu Borgars Þórs Einarssonar lögfræðings, hefur unnið að skýrslunni frá árinu 2014. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins verður skýrslan kynnt á Alþingi í dag. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira