Ólafía Þórunn rétti sig af á seinni níu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. nóvember 2016 11:20 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Mynd/LET/Tristan Jones
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir gerði engin mistök á síðari níu holunum sínum á Hero Women's Indian Open mótinu á Indlandi í morgun. Hún byrjaði ekki nógu vel og missti fjögur högg á fyrstu sex holunum sínum í morgun. En hún hélt striki eftir það og paraði hinar tólf holurnar, þar af allar á seinni níu. Ólafía Þórunn ræsti af tíunda teig í morgun og fékk skolla á tólftu og fimmtándu holu. Hún fékk þar að auki skramba á fjórtándu holu. Keppt er á aðalvelli DLF-klúbbsins í Gurgaon á Indlandi en Ólafía Þórunn sagði við íþróttadeild í gær að um afar krefjandi völl væri að ræða. Það væri auðvelt að tapa höggum og að skor keppenda á þessum velli væri yfirleitt hátt. Það sést best á því að Ólafía Þórunn náði að mjaka sér upp töfluna í dag með því einu að spila á pari á síðustu tólf holunum. Var hún í 43.-58. sæti þegar hún kom í hús en þá áttu einhverjir kylfingar enn eftir að ljúka keppni. 60 bestu kylfingarnir komast í gegnum niðurskurðinn á morgun og ljóst að ef Ólafía Þórunn heldur sínu striki þá á hún góðan möguleika á því. Olafía Þórunn þarf þó að bæta sinn leik á morgun til að blanda sér í toppbaráttuna en sem stendur er hún sex höggum á eftir efstu kylfingum. Hún var fyrir mótið í 105. sæti peningalista Evrópumótaraðarinnar en þarf að vera í hópi efstu kylfinga mótsins í Indlandi til að komast í hóp 80 efstu og endurnýja þátttökurétt sinn fyrir næsta keppnistímabil.
Golf Tengdar fréttir Ólafía Þórunn: Þá veit ég að næsta ár mun líta vel út fyrir mig Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður að ná góðum árangri á Indlandi um helgina til að komast aftur inn á Evrópumótaröðina á næsta keppnistímabili. Hún á þó enn möguleika á að komast inn á LPGA vestanhafs. 11. nóvember 2016 06:30 Ólafía Þórunn byrjar illa á Indlandi Eftir frábæra frammistöðu á móti í Abú Dabí í síðustu viku fer GR-ingurinn ekki vel af stað á opna Indlands-mótinu. 11. nóvember 2016 08:00 Mest lesið Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Féll á lyfjaprófi rétt fyrir Ólympíuleika í heimalandinu Sport Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Fótbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Fótbolti Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Handbolti Fleiri fréttir LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira
Ólafía Þórunn: Þá veit ég að næsta ár mun líta vel út fyrir mig Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður að ná góðum árangri á Indlandi um helgina til að komast aftur inn á Evrópumótaröðina á næsta keppnistímabili. Hún á þó enn möguleika á að komast inn á LPGA vestanhafs. 11. nóvember 2016 06:30
Ólafía Þórunn byrjar illa á Indlandi Eftir frábæra frammistöðu á móti í Abú Dabí í síðustu viku fer GR-ingurinn ekki vel af stað á opna Indlands-mótinu. 11. nóvember 2016 08:00