Golf

Ólafía Þórunn: Þá veit ég að næsta ár mun líta vel út fyrir mig

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Púttað í menguninni Ólafía Þórunn á DLF-vellinum í Gurgaon í gær.
Púttað í menguninni Ólafía Þórunn á DLF-vellinum í Gurgaon í gær.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir átti eftirminnilega helgi er hún keppti á sterku móti Evrópumóta­raðarinnar í golfi í Abú Dabí. Eftir að hafa leitt fyrstu tvo dagana gaf hún eftir og hafnaði að lokum í 26. sæti. Er það næstbesti árangur hennar á fyrsta keppnistímabili hennar á Evrópumótaröðinni en árangurinn gaf henni mestar tekjur sem hún hefur haft af einu móti í ár, um 650 þúsund krónur.

Ólafía keppti í Kína fyrir tveimur vikum, svo í Abú Dabí um síðustu helgi og er nú komin til Indlands, þar sem hún keppir á Hero Women’s Indian Open sem hefst í dag.

„Ég fann fyrir ferðaþreytu og tímamismuninum þegar ég kom fyrst til Kína, sérstaklega þar sem ég fékk aðeins einn dag til að undirbúa mig fyrir það mót,“ sagði Ólafía Þórunn í samtali við Fréttablaðið í gær en þá var hún að leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir mótið í dag.

Ólafía Þórunn segir að hún hafi verið fljót að jafna sig á því að spila hinum megin á hnettinum, enda dvelur hún lengst af í Evrópu, annað­hvort á Íslandi eða í Þýskalandi. Hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn í Kína, þar sem völlurinn hentaði henni illa að eigin sögn, en komst svo á mikið flug í Abú Dabí.

Dauðahola á sautjándu

„Sá völlur er geggjaður og afar skemmtilega hannaður. Hann leyfði manni að taka smá áhættu,“ segir Ólafía Þórunn sem bætir við að völlurinn á Indlandi líkist ekki neinu sem hún hefur áður kynnst og hefur hún spilað víða á ferlinum.

„Þetta er klikkaður völlur,“ segir hún í léttum dúr. „Til dæmis er sautjánda holan þannig að maður slær yfir vatn á litla braut. Flötin er svo 40 metrum fyrir ofan mann og pínulítil þar að auki. Maður sér því ekkert hvert maður er að slá í inná­högginu. Þetta er alger dauðahola.“

LPGA er stóra markmiðið

Ólafía Þórunn er sem stendur í 105. sæti peningalistans á Evrópumótaröðinni en efstu 80 fá sjálfkrafa þátttökurétt á næsta keppnistímabili. Þetta verður í raun síðasta mót Ólafíu Þórunnar á Evrópumótaröðinni þar sem hún þarf að sleppa móti í Katar til að taka þátt í lokastigi úrtökumótaraðarinnar fyrir bandarísku atvinnumannaröðina, LPGA.

„Stærsta markmiðið er auðvitað að komast inn á LPGA. En ég vil samt standa mig vel í þessu móti á Indlandi til að vera örugg með þátttökuréttinn á Evrópumótaröðinni. Þá veit ég að næsta ár mun líta vel út fyrir mig, sama hvað gerist með LPGA,“ segir hún.

Orðin betri kylfingur

Annar möguleiki er að taka þátt í Symetra-mótaröðinni. Það er næststerkasta mótaröð Bandaríkjanna og er Ólafía Þórunn nú þegar með öruggan þátttökurétt á henni, sama hvað gerist á öðrum vígstöðum.

„Ég er ekki viss um að ég myndi flytja ein til Bandaríkjanna fyrir Symetra,“ segir hún en kærasti hennar er þýskur og flakka þau á milli Þýskalands og Íslands, þar sem hann er í námi. „Mér finnst Evróputúrinn mjög skemmtilegur og myndi gjarnan vilja spila aftur á honum.“

Ólafía Þórunn er ánægð með árið, sama hvernig fer um helgina. „Ég er orðin mun betri kylfingur og hef lært meira inn á sjálfa mig. Ég er mun reynslumeiri og betur sett til að takast á við hvað sem er í framtíðinni,“ segir hún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×