Ár liðið frá árásunum á skrifstofur Charlie Hebdo Atli Ísleifsson skrifar 7. janúar 2016 09:56 Sérstök athöfn til minningar um fórnarlömbin verður haldin á Place de la Republique á sunnudag. Vísir/AFP
Parísarbúar minnast þess að ár er í dag liðið frá árásinni á ritstjórnarskrifstofur tímaritsins Charlie Hebdo. Margir hafa lagt leið sína að götunni Rue Nicolas-Appert í 11. hverfi þar sem veggskjöldur til minningar um fórnarlömbin var afhjúpaður á þriðjudag. Þá hafa margir komið fyrir blómum og kveikt á kertum fyrir utan fyrrverandi skrifstofur tímaritsins þar sem árásin átti sér stað. Sautján manns féllu í árásunum sem gerðar voru á skrifstofur Charlie Hebdo og matvöruverslun fyrir gyðinga. Í frétt BBC segir að engir sérstakir opinberir viðburðir séu á dagskrá í dag, en Francois Hollande Frakklandsforseti hyggst ávarpa lögreglumenn borgarinnar. Þá er búist við að Marine Le Pen, leiðtogi þjóðernisflokksins Front National, muni einnig flytja ávarp í dag. Sérstök athöfn til minningar um fórnarlömbin verður þó haldin á Place de la Republique í París á sunnudag. Tíu metra háu eikartré verður komið fyrir á torginu og franski tónlistarmaðurinn Johnny Hallyday mun flytja lagið Un Dimanche de Janvie (Sunnudagur í janúar). Serstökum minningarveggskjöldum hefur einnig verið upp á tveimur stöðum í borginni þar sem lögreglumenn voru skotnir til bana og við matvöruverlunina fyrir gyðinga.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Fleiri fréttir Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Sjá meira