Hljóta viðurkenningar á Degi íslenskrar náttúru Atli Ísleifsson skrifar 16. september 2016 15:30 Ráðherra og umsjónarmenn Samfélagsins. Mynd/Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Umsjónarmenn Samfélagsins, þáttar Rásar 1, tóku í dag á móti fjölmiðlaverðlaunum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins á Degi íslenskrar náttúru. Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra afhenti verðlaunin. Við sama tækifæri veitti hún Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti en hana hlutu annars vegar hjónin Kolbrún Ulfsdóttir og Jóhannes Haraldsson á Hótel Rauðuskriðu í Aðaldal og hins vegar Stella Guðmundsdóttir í Heydal í Mjóafirði. Í frétt á vef ráðuneytisins segir að í rökstuðningi dómnefndar fjölmiðlaverðlauna segi að viðurkenningin sé veitt fyrir almenna umfjöllun Samfélagsins um mál sem snerta íslenska náttúru. „Samfélagið á Rás 1, RÚV hljóðvarpi, hlýtur fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins árið 2016 fyrir að gefa íslenskri náttúru rödd á öldum ljósvakans með því að gera umhverfismál að þungamiðju í ritstjórnarstefnu sinni. Umsjónarmenn þáttarins, þau Leifur Hauksson, Þórhildur Ólafsdóttir og Björn Þór Sigbjörnsson, hafa ásamt sérfræðingum, sem þau hafa fengið til liðs við sig unnið framúrskarandi starf við að fjalla um náttúruvernd í víðum skilningi og benda á ógnir sem steðja að náttúrunni, en einnig að tengja þá umfjöllun öðrum málefnum, sem eru efst á baugi, og vekja hlustendur til vitundar um hve mikilvæg umhverfismál eru í daglegu lífi þeirra.“Kolbrún Ulfsdóttir og Jóhannes Haraldsson á Hótel Rauðuskriðu í Aðaldal og Stella Guðmundsdóttir í Heydal í Mjóafirði.Mynd/Umhverfis- og auðlindaráðuneytiðÍ rökstuðningi ráðherra vegna Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti kemur meðal annars fram að þau Kolbrún og Jóhannes hafi komið Hótel Rauðuskriðu í gegn um strangt vottunarferli norræna Svansins fyrst íslenskra hótela og fyrsti gististaðurinn utan Reykjavíkur. „Síðar hafi það fengið gullmerki Vakans, sem er umhverfis- og gæðavottunarkerfi ferðaþjónustunnar. Sterk hugsjón hafi drifið þau áfram og sé litið til Rauðuskriðu sem fyrirmyndarfyrirtækis í ferðaþjónustu í sveitum, ekki bara á Íslandi heldur einnig í umhverfisstarfi hótela á norrænum vettvangi. Stella hljóti viðurkenninguna m.a. fyrir að hafa skapað náttúruvænt ferðaþjónustufyrirtæki á afskekktu svæði sem annars hefði verið hætt við að legðist í auðn. Þannig hafi hún stuðlað að því að dreifa álaginu sem af fjölgun ferðamanna hlýst með því að skapa og bjóða upp á nýjan áfangastað í íslenskri náttúru. Af nærgætni og virðingu fyrir umhverfinu hafi hún opnað augu ferðamanna fyrir undrum náttúrunnar í þessum ævintýradal,“ segir í fréttinni.
Mest lesið Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Stúlkan er fundin Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent Fleiri fréttir Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Sjá meira