Síðustu dagar þeir annasömustu á Landspítalanum í lengri tíma sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 16. september 2016 18:31 Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans . Mynd/Þorkell
Síðustu dagar á Landspítalanum hafa verið þeir annasömustu sem sést hafa undanfarin misseri, að sögn Páls Matthíassonar, forstjóra spítalans. Inflúensa A hefur í ofanálag greinst á spítalanum og hafa starfsmenn verið hvattir til þess að láta bólusetja sig hið fyrsta. Páll segir í forstjórapistli á vefsíðu Landspítalans að grípa hafi þurft til ýmissa aðgerða til þess að mæta álaginu. „Við höfum frá áramótum stuðst við svokallaðan gátlista innlagna, þar sem fylgst er með innlögnum og álagi á deildum spítalans og stigum við spítalann eftir fjölda sjúklinga,“ segir Páll. Stiga hafi þurft spítalann á hæsta stigi og velferðarráðuneyti og embætti landlæknis gert viðvart, ásamt því sem leitað hafi verið til nágrannasjúkrahúsa um aðstoð. „Við höfum nýtt alla möguleika til gangayfirlagna á bráðadeildum og frestað skurðaðgerðum sem krefjast innlagna og hjartaþræðingum svo unnt væri að nýta dagdeildir fyrir legusjúklinga,“ segir Páll. Tvö tilfelli af inflúensu A hafa greinst á einni deild Landspítala í Fossvogi. Þá eru fleiri sjúklingar og starfsfólk með flensueinkenni. Guðrún Sigmundsdóttir, settur sóttvarnalæknir, segir inflúensuna óvenju snemma á ferðinni, en það verði að koma í ljós hvernig framvindan verður. „Það er ekki búið að staðfesta að þetta sé búið að skjóta rótum í samfélaginu almennt,“ segir Guðrún Páll segir að sýkingavarnadeild hafi strax gripið til aðgerða, lokað deildinni fyrir innlögnum og að meðferð hafi hafist strax, ásamt því sem bólusetningar séu þegar hafnar.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira