Gerðu nákvæma eftirlíkingu af klefa Sigurðar á Litla-Hrauni Aðalsteinn Kjartansson skrifar 29. janúar 2016 15:05 Á öryggismyndavélum sjást Annþór og Börkur fara inn í klefa Sigurðar Hólm á Litla-Hrauni. Vísir/Anton Brink
Lögreglan gerði nákvæma eftirlíkingu af klefanum á Litla-Hrauni þar sem Regina Preuss réttarmeinafræðingur og Þóra Steinunn Steffensen, dómskvaddur matsmaður í málinu, gerðu tilraunir til að komast að niðurstöðu um hvort Sigurður Hólm Sigurðsson hefði getað dottið á eitthvað inni í fangaklefanum sínum á Litla-Hrauni. Um er að ræða klefann þar sem Sigurður Hólm Sigurðsson fannst látinn vorið 2012. Skömmu áður höfðu Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson heimsótt hann í klefann. Þeir eru ákærðir fyrir líkamsárás sem leiddi til dauða hans. Tveir lögreglumenn voru klæddir í hvíta boli og krít notuð til að lita þær brúnir og hluti sem gætu mögulega hafa orsakað þá áverka sem drógu hann til dauða. Til viðbótar var dúkka notuð til að líkja eftir falli á stól og klósett sem voru í klefanum. Þóra lýsti tilrauninni nokkuð ítarlega fyrir dómnum. „Við skoðuðum allt sem hugsanlega hefði verið hægt að ganga á, eða reka sig í, eða detta ofan á og reyndum að finna út úr því, með því að nota þessa tvo lögreglumenn, hvar ákomustaðurinn myndi vera ef að Sigurður hefði rekið sig í og dottið,“ sagði hún. Annþór og Börkur lýsa yfir sakleysi sínu í málinu. Framkallaði marblett „Létum þá stilla sér upp utan í og ofan á eins og um fall hefði verið að ræða og skoðuðum síðan hvar ákoman væri. Ýmist var ákoman of hátt, eins og til dæmis á hillu, eða hlutirnir eða brúnirnar voru það breiðar að þær hefðu valdið áverka á sjálfum brjóstkassaveggnum,“ sagði hún og bætti við að það hefði framkallað marblett. „Síðan var stóll í klefanum sem var með sljórri brúnir en aðrir hlutir í klefanum en þegar við notuðum dúkku sem vó áttatíu kíló og slepptum henni ofan á stólinn þá beygluðust fæturnir á stólnum og hann endaði í klessu á gólfinu,“ sagði hún og bætti við að það hefði verið sinn skilningur að stóllinn í klefanum hjá Sigurði hefði verið í lagi, hafi ekki verið beyglaður.“ Þóra sagði einnig að hún teldi ekki nógu mikinn kraft felast í því að standa uppréttur og falla á þá hluti sem voru í klefanum til að miltað hefði rifnað. „Eftir að hafa skoðað þennan eftirlíkingarklefa þá taldi ég að fall í klefanum kæmi ekki til greina sem útskýring á þessum áverkum,“ sagði hún. Hólmgeir Elías Flosason er verjandi Annþórs Karlssonar.Mynd/versus Dúkkan þyngri og löggurnar lægri Hólmgeir Elís Flosason, verjandi Annþórs, sagði að breytur væru í rannsókninni sem ekki pössuðu við raunveruleikann og vildi vita hvort eitthvað annað væri í framkvæmd þessarar óvísindalegu rannsóknar sem ekki passaði við raunveruleika málsins. Hvorugur lögreglumannanna var þó jafn hár og Sigurður Hólm. Báðir voru þeir lægri í loftinu, en Sigurður var 185 sentímetrar á hæð. Þá var dúkkan sem notuð var í tilrauninni tíu kílóum þyngri en Sigurður Hólm var. Spurði hann Þóru hvort að þetta væri að hennar mati fullkomin rannsóknaraðferð. „Það er náttúrulega ekki fullkomið þegar við erum ekki að fórna mönnum. við gerum eins vel og hægt er. Reynum að sjá sem best hvernig ummerki, þessar brúnir eða kantar eða hlutir, myndu skilja eftir sig á líkama lögreglumannanna,“ svaraði hún.
Mál Annþórs og Barkar Dómsmál Tengdar fréttir Sigurður sagði lögreglumanni að hann hefði stungið Annþór með sprautunál Sigurður Hólm Sigurðsson sagði lögreglumanni þann 3. apríl 2012 að þeir Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson hefðu reynt að kúga sig til að brjótast inn fyrir þá. 28. janúar 2016 15:52 Sigurður kom í fangelsið nánast beint „af götunni“ Enginn þeirra fangavarða eða sjúkraflutningamanna sem báru vitni sögðust hafa orðið varir við eitthvað óvenjulegt í tengslum við andlát Sigurðar inni í klefa hans. 28. janúar 2016 16:26 Börkur segist hafa fengið morðhótun í eldhúsinu á Litla-Hrauni eftir að Sigurður lést "Ég meina, hann er náttla dæmdur morðingi og maður veit aldrei upp á hverju þessir menn taka,“ sagði Börkur Birgisson en Elís Helgi Ævarsson hlaut 16 ára dóm fyrir morð árið 2000. 28. janúar 2016 12:18 Segir að Sigurður hafi verið hræddur við Annþór og Börk þegar hann kom í fangelsið "Ég talaði því við Anna og spurði hvort þeir myndu ekki láta hann í friði. Siggi myndi borga það sem hann skuldaði þeim og Anni tók í höndina á mér og sagðist ætla að láta hann í friði,” sagði Elís Helgi Ævarsson. 28. janúar 2016 14:35 Niðurstaða rannsóknar á upptökunni: Annþór og Börkur sýndu ógnandi burði gagnvart Sigurði Hart var deilt um skýrslu íslenskra matsmanna í dómssal í morgun og erlendur sérfræðingur kallaður til að segja sína skoðun á málinu. 29. janúar 2016 12:48 Mest lesið Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Erlent Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Erlent Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Erlent Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Innlent „Býsna margt orðið grænmerkt“ Innlent Konan er fundin Innlent Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Innlent Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Innlent Fleiri fréttir Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Björguðu göngukonu í sjálfheldu við Hrafntinnusker Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fipast við akstur Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Búið að boða til nýs fundar Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Inga mundaði skófluna við Sóltún „Þá fylgir það börnum í gegnum skólakerfið og út í samfélagið“ Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Sósíalistum bolað úr Bolholti Sýknaður af kæru Samtakanna 78 um hatursorðræðu Lokametrar, bútasaumur og Starbucks Veiðigjaldið aftur í nefnd og viðræður komnar á lokametra Lára snýr sér að kynningarstörfum fyrir HR Bætti þúsund tonnum í strandveiðipottinn Skellt upp úr í þingsal þegar ráðherra reyndi að mynda hjarta Rúv vildi Ísraelsmenn burt en þeir sluppu með skrekkinn í bili Lögðu hald á mikið magn fíkniefna og fleiri milljónir Sjá meira
Sigurður sagði lögreglumanni að hann hefði stungið Annþór með sprautunál Sigurður Hólm Sigurðsson sagði lögreglumanni þann 3. apríl 2012 að þeir Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson hefðu reynt að kúga sig til að brjótast inn fyrir þá. 28. janúar 2016 15:52
Sigurður kom í fangelsið nánast beint „af götunni“ Enginn þeirra fangavarða eða sjúkraflutningamanna sem báru vitni sögðust hafa orðið varir við eitthvað óvenjulegt í tengslum við andlát Sigurðar inni í klefa hans. 28. janúar 2016 16:26
Börkur segist hafa fengið morðhótun í eldhúsinu á Litla-Hrauni eftir að Sigurður lést "Ég meina, hann er náttla dæmdur morðingi og maður veit aldrei upp á hverju þessir menn taka,“ sagði Börkur Birgisson en Elís Helgi Ævarsson hlaut 16 ára dóm fyrir morð árið 2000. 28. janúar 2016 12:18
Segir að Sigurður hafi verið hræddur við Annþór og Börk þegar hann kom í fangelsið "Ég talaði því við Anna og spurði hvort þeir myndu ekki láta hann í friði. Siggi myndi borga það sem hann skuldaði þeim og Anni tók í höndina á mér og sagðist ætla að láta hann í friði,” sagði Elís Helgi Ævarsson. 28. janúar 2016 14:35
Niðurstaða rannsóknar á upptökunni: Annþór og Börkur sýndu ógnandi burði gagnvart Sigurði Hart var deilt um skýrslu íslenskra matsmanna í dómssal í morgun og erlendur sérfræðingur kallaður til að segja sína skoðun á málinu. 29. janúar 2016 12:48