Magnús Ver fær 600 þúsund og ekki krónu meir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. september 2016 15:09 Magnús Ver fór fram á tíu milljónir króna í skaðabætur. Hann fær hins vegar 600 þúsund eftir að Hæstiréttur staðfesti dóminn úr héraði. Vísir/Vilhelm
Magnús Ver Magnússon, fyrrverandi sterkasti maður heims, fær 600 þúsund krónur í bætur frá ríkinu vegna ólögmætra aðgerða lögreglu, meðal annars hlerana og eftirfylgdar, vegna gruns um að hann væri viðriðinn stórfellt fíkniefnasmygl. Sá grunur reyndist ekki á rökum reistur og var rannsókn málsins hætt. Hæstiéttur kvað upp dóm sinn í dag og staðfesti þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í fyrra þar sem Magnúsi voru dæmdar 600 þúsund krónur. Magnús Ver fór fram á tíu milljónir króna í miskabætur frá ríkinu auk dráttarvaxta og málskostnaðar í stefnu sinni á hendur ríkinu í héraði. Hélt hann kröfu sinni til streitu fyrir Hæstarétti. Ríkið fór fram á verulega lækkaðar dómkröfur í héraði og að málskostnaður yrði felldur niður, en krafðist ekki sýknu. Magnús lýsti yfir vonbrigðum með dóminn í héraði á sínum tíma. Taldi hann léttvægan því hann hefði vonast til þess að dómurinn hefði fordæmisgildi.Fylgdu honum eftir og hleruðu Upphaf málsins má rekja til símtals sem Magnús Ver fékk frá lögreglunni þann 21. ágúst árið 2014. Í því símtali tilkynnti lögreglumaður Magnúsi Ver að lögreglan hefði beitt ýmsum rannsóknarúrræðum í rannsókn sem beindist að honum á sínum tíma, þar með talið að hlera síma hans, nota eftirfararbúnað í bifreið hans sem og að setja hlustunarbúnað í bifreið í umráðum Magnúsar. Magnús sagði í samtali við Fréttablaðð að honum hefði verið verulega brugðið þegar hann komst á snoðir um aðgerðir lögreglu. Ekki síst þegar í ljós kom að sími dóttur hans hefði verið hleraður. Magnús byggði bótakröfu sína á því að hafa verið rannsakaður af lögreglu í nærri þrjú ár en 1. október árið 2014 var lögmanni Magnúsar tilkynnt um að rannsókn málsins, þar sem Magnús hafði réttarstöðu grunaðs manns, væri lokið.
Tengdar fréttir Magnús Ver áfrýjar til Hæstaréttar Magnús Ver Magnússon ætlar að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar. Hinn 16. október dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur ríkið til að greiða Magnúsi 600 þúsund krónur í miskabætur vegna rannsóknar lögreglu á meintri aðild hans að fíkniefnainnflutningi. 5. nóvember 2015 05:00 Þung byrði á fyrrverandi sterkasta manni heims "Við vissum það alveg frá byrjun að við værum með unnið mál. Spurningin var bara hversu mikils virði eru mannréttindi og friðhelgi einkalífs einstaklings,“ segir fyrrverandi aflraunamaðurinn Magnús Ver Magnússon. 5. október 2015 09:00 Magnús Ver vill 10 milljónir í bætur frá íslenska ríkinu Lögregla hleraði síma hans og kom fyrir eftirfararbúnaði í bifreið hans vegna gruns um stórfellt fíkniefnasmygl en rannsókn málsins var látin niður falla. 27. mars 2015 17:00 Magnús Ver fær 600 þúsund krónur í bætur vegna hlerana Fyrrverandi sterkasti maður heims fór fram á 10 milljónir króna í bætur. Magnús Ver segir dóminn að hluta vonbrigði. 16. október 2015 14:00 Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Fundað í flugvirkjadeilu Innlent Fleiri fréttir Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Sjá meira
Magnús Ver áfrýjar til Hæstaréttar Magnús Ver Magnússon ætlar að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar. Hinn 16. október dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur ríkið til að greiða Magnúsi 600 þúsund krónur í miskabætur vegna rannsóknar lögreglu á meintri aðild hans að fíkniefnainnflutningi. 5. nóvember 2015 05:00
Þung byrði á fyrrverandi sterkasta manni heims "Við vissum það alveg frá byrjun að við værum með unnið mál. Spurningin var bara hversu mikils virði eru mannréttindi og friðhelgi einkalífs einstaklings,“ segir fyrrverandi aflraunamaðurinn Magnús Ver Magnússon. 5. október 2015 09:00
Magnús Ver vill 10 milljónir í bætur frá íslenska ríkinu Lögregla hleraði síma hans og kom fyrir eftirfararbúnaði í bifreið hans vegna gruns um stórfellt fíkniefnasmygl en rannsókn málsins var látin niður falla. 27. mars 2015 17:00
Magnús Ver fær 600 þúsund krónur í bætur vegna hlerana Fyrrverandi sterkasti maður heims fór fram á 10 milljónir króna í bætur. Magnús Ver segir dóminn að hluta vonbrigði. 16. október 2015 14:00