Konur að jafnaði með 14 prósent lægri heildarlaun en karlar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 15. september 2016 17:38 „Það eru vissulega vonbrigði að þrátt fyrir harða og áralanga baráttu félagsins fyrir jöfnum launum karla og kvenna skuli munurinn enn vera svona mikill,“ segir Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR.
Konur eru að jafnaði með 14,2 prósent lægri heildarlaun en karlar og kynbundinn launamunur, það er launamunur sem ekki er hægt að skýra með neinu öðru en kynferði er 10 prósent, samkvæmt árlegri launakönnun VR sem birt var í dag. Þar kemur fram að launamunur kynjanna hafi haldist óbreyttur á milli ára, en munurinn var 9,9 prósent í síðustu könnun. Þegar litið er til grunnlauna eru konur með 12,2 prósent lægri laun en karlar og þegar búið er að taka tillit til annarra þátta sem hafa áhrif á launin situr eftir 9,9 prósent kynbundinn munur á grunnlaunum. Þá er umtalsverður munur á kynjum hvað varðar hlunnindi á borð við símakostnað, líkamsræktarstyrki eða farsíma. Þannig fá 87 prósent karla slík hlunnindi en 74 prósent kvenna. „Ef konur innan VR fengju sömu laun og karlar í félaginu jafngildir núverandi launamunur því að konur séu „launalausar“ í 36 daga í ár,“ segir í tilkynningu frá VR. „Það eru vissulega vonbrigði að þrátt fyrir harða og áralanga baráttu félagsins fyrir jöfnum launum karla og kvenna skuli munurinn enn vera svona mikill,“ segir Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR í tilkynningunni. Samkvæmt könnuninni voru heildarlaun félagsmanna VR að meðaltali 635 þúsund krónur á mánuði í apríl 2016 og höfðu hækkað um 15,8 prósent frá því í janúar í fyrra. Grunnlaun voru 589 þúsund krónur að meðaltali. Þá segir að þeir sem fóru á síðasta ári í launaviðtal hjá atvinnurekanda séu að jafnaði með fimm prósent hærri laun en þeir sem fóru ekki í viðtal. Þegar félagsmenn voru spurðir hvort þeir hefðu orðið fyrir fordómum í vinnu kom í ljós að einn af hverjum fjórum hefur orðið fyrir fordómum í vinnu einhvern tímann á ævinni og einn af hverjum tuttugu einhvern tímann á síðustu sex mánuðum.
Mest lesið Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Erlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Fleiri fréttir Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sjá meira