HIV samtök frá Rúmeníu kynna sér forvarnarstarf á Íslandi Heimir Már Pétursson skrifar 15. september 2016 20:00
Þrír fulltrúar HIV samtaka í Rúmeníu eru komnir hingað til lands til að kynna sér starfsemi HIV Ísland. Talsmaður samtakanna segir HIV jákvæða vera þann samfélagshóp sem mest er mismunað í Rúmeníu, þótt ástandið hafi skánað mikið frá því einræðisherrann var hrakinn frá völdum. Aðstæður HIV jákvæðra í Rúmeníu hafa sem betur fer batnað mikið frá þeirri hörmungarmynd sem blasti við eftir að almenningur steypti Ceausescu af stóli árið 1989, þegar þúsundir barna, mörg smituð af HIV, fundust vannærð og yfirgefin á munaðarleysingjahælum víðs vegar um landið. Alex Gheorghiu formaður Semper musica HIV samtakanna í Rúmeníu segir stöðu HIV jákvæðra engu að síður langt í frá góð í landinu. “HIV-jákvæðir í Rúmeníu sæta mestri mismunun allra hópa þar samkvæmt landsráðinu gegn mismunun. HIV-jákvæðir sæta mun meiri mismunun en t.d. sígaunar og aðrir hópar. Engum öðrum hópi í Rúmeníu er mismunað eins og þessum,” segir Alex. HIV jákvætt fólk fái þó matarpeninga og fría læknishjálp en sé umvörpum neitað um vinnu og rekið komist upp að það sé smitað. Mörg þeirra barna sem fundust á munaðarleysingjahælunum séu enn á lífi. Sum hafi spjarað sig en önnur lent á götunni eftir 18 ára aldurinn og jafnvel leiðst út í vændi. Yfirgefnu börnin „Við höfum t.a.m. verið í sambandi við einn þessara einstaklinga og ræddum lengi við hana. Hún smitaðist á barnsaldri þegar Ceausescu var við völd. Hún smitaðist á sjúkrahúsi. Sem betur fer var stofnun við lýði í Rúmeníu mjög virk í þessum málum eftir fall Ceausescus og byltinguna, sem annaðist þessa einstaklinga og reyndi að laga þá að samfélaginu. En þegar fjölskylda sem ætlaði að ættleiða hana komst að því að hún væri HIV-jákvæð var ættleiðingunni rift,” segir Alex. Þremenningarnir fengu styrk frá verkefni sem kallast "Allir fyrir einn" og er fjármagnað af stjórnvöldum á Íslandi, í Noregi og Liktenstein. Þeir hafi valið að kynna sér starfsemi íslensku samtakanna vegna þess að þau séu þau elstu starfandi í þessum þremur ríkjum og hafi náð góðum árangri. „Það er mikilvægt fyrir okkur að heimsækja samtök sem hafa verið virk í svo langan tíma og sjá hvað þau hafa gert í sínu starfi. Við viljum flytja þessa þekkingu heim til okkar og nýta til forvarna í Rúmeníu. En við einbeitum okkur að því að uppfræða ungmenni,” segir Alex. Þeir munu því meðal annars fara í heimsóknir í grunnskóla með fulltrúum HIV Íslands til að kynnast fræðslustarfinu hér á landi. En í Rúmeníu er þeim meinaður aðgangur að grunnskólunum vegna andstöðu Rétttrúnaðarkirkjunnar. Samtökin einbeita sér því að framhaldsskólunum í fræðslustarfi sínu á þeim svæðum sem áhrif kirkjunnar eru mest. En þar berst hún m.a. gegn notkun smokksins. „Við förum aðallega til austurhluta Rúmeníu og til suðurhlutans þar sem mest er um nýgengi HIV-smits. Á þessum svæðum er fátækt líka mest í Rúmeníu og áhrif rétttrúnaðarkirkjunnar mjög mikil þannig að við leggjum áherslu á þessi svæði í fræðslustarfi okkar,“ segir Alex.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira