Gæti gefið tífalt meiri orku Svavar Hávarðsson skrifar 27. apríl 2016 07:00 Til verksins munu Jarðboranir nota stærsta bor landsins, jarðborinn Þór. Holan verður stutt frá Reykjanesvirkjun. vísir/GVA
orkumál Þess verður freistað að bora allt að fimm kílómetra djúpa háhitaholu á Reykjanesi síðar á þessu ári. Stefnt er að því að holan verði dýpsta og heitasta vinnsluhola jarðvarma á Íslandi. Slík háhitahola gefur fræðilega tífalda orku á við hefðbundna háhitaholu. HS Orka og Jarðboranir undirrituðu samning um borun háhitaholunnar í gær. Verkefnið er hluti af Íslenska djúpborunarverkefninu (IDDP) sem fékk nýlega styrk upp á 1,3 milljarða króna frá rannsóknaráætlun Evrópusambandsins (Horizon 2020). HS Orka leiðir verkefnið í samstarfi við norska olíufélagið Statoil, auk annarra fyrirtækja innan IDDP-samstarfsins. Auk HS Orku eru Ísor, Landsvirkjun, Georg-rannsóknaklasi í jarðhita ásamt evrópskum fyrirtækjum þátttakendur í verkefninu.Guðmundur Ó. FriðleifssonTilgangur verkefnisins er að sýna fram á að framleiða megi orku úr djúplægum jarðhitakerfum sem gæti aukið orkuframleiðslu háhitasvæða umtalsvert og þar með dregið úr landrýmisþörf orkuvinnslunnar. Vonir þeirra sem að verkefninu standa, ef allt gengur að óskum, eru þær sömu og þegar reynt var við djúpborun á Kröflusvæðinu, staðfestir yfirverkfræðingur hjá HS Orku, Guðmundur Ó. Friðleifsson. Litið er til þess að fræðilega geti djúpborun gefið háhitaholu sem gefur allt að því tífalt meiri orku en hefðbundin háhitahola sem nýtt er til vinnslu jarðhita hér á landi í dag. Slík borhola gefur þetta fimm megavött svo 50 megavött rafafls eru talin möguleg, ef besti árangur næst. Til samanburðar er uppsett afl Kröfluvirkjunar um 60 megavött. Vinnslutækni verkefnisins ræðst af því hvernig jarðhitavökvi finnst á fjögurra til fimm kílómetra dýpi. Ef efnasamsetningin reynist viðráðanleg og unnt verður að vinna yfirhitaða orkuríka gufu beint upp úr djúpu borholunni er það fyrsti valkostur. Ef efnasamsetning vökvans reynist hins vegar of erfið, verður vatni frá yfirborði dælt ofan í holuna til að efla orkuvinnslu úr grynnri nærliggjandi holum. Við borun holunnar, prófanir, mælingar og vinnslu verður prófuð ný tækni og búnaður í samstarfi við bæði innlenda og erlenda aðila. HS Orka leggur til verksins holu 15 á Reykjanesi sem er 2,5 kílómetra djúp og er ætlunin að dýpka holuna allt niður að fimm kílómetrum. Samningurinn er hluti af öðrum áfanga íslenska djúpborunarverkefnisins (IDDP-2). Boruðu niður í kvikuhólf Íslenska djúpborunarverkefnið (IDDP) hefur verið starfrækt í um 15 ár. Að IDDP standa íslensku orkufyrirtækin HS Orka, Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur, ásamt Orkustofnun og norska olíufélaginu Statoil. Á árunum 2008-2009 var fyrsta djúpborunarholan, IDDP-1, boruð við Kröflu og lenti hún í 900°C heitri kviku á 2,1 kílómetra dýpi. Þar tókst að sýna fram á að vinna mætti mikla orku úr yfirhitaðri gufu úr berginu rétt ofan við bráðna bergkviku, og áformar Landsvirkjun að halda áfram tilraunum með slíka orkuvinnslu þar á næstu árum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 27. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira