Færri heimilisofbeldismál felld niður sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 13. apríl 2016 12:31 Umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum er með hæsta hlutfall heimilisofbeldismála, fyrir utan höfuðborgarsvæðið. vísir/gva
Mun færri rannsóknir á heimilisofbeldi á Suðurnesjum eru felldar niður nú en áður. Hlutfall mála þar sem rannsókn var hætt fækkaði úr 94 prósentum árið 2010 í þrjú prósent árið 2015. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjanesbæ. Þar segir að það sem meðal annars þótti til bóta hafi verið að fólk geti nú leitað til annarra einstaklinga en lögreglu, en félagsþjónustur sveitarfélaganna komu að 42 málum af 62 á síðasta ári. Þá segir að mál fái nú meiri framgang innan réttarvörslukerfisins. Alls hafi 28 dómar fallið í heimilisofbeldismálum á Suðurnesjum á árunum 2011-2014. Haft er eftir Skúla Jónssyni og Jóhannesi Jenssyni hjá lögreglunni á Suðurnesjum að árið 2010 hafi rannsóknum verið hætt í 17 af þeim 18 málum sem komu til kasta lögreglu, strax hjá rannsóknardeild. Árið 2015 hafi þetta hlutfall verið komið niður í tvö mál.Hæsta hlutfall heimilisofbeldis utan höfuðborgarsvæðisins Þeir segja nokkrar sveiflur hafa verið í málafjölda undanfarin ár en betri skráning hjá lögreglu og aukin tiltrú almennings á verklagi séu hugsanlegar skýringar á því. Um átta prósent þeirra heimilisofbeldismála sem koma á borð lögreglu á landinu eiga sér stað á Suðurnesjum en íbúafjöldinn er um sjö prósent af heildaríbúafjöldanum. Að sögn Skúla og Jóhannesar er umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum með hæsta hlutfall þessara mála utan höfuðborgarsvæðisins. „Verklagið hjá okkur gengur út á „að halda glugganum opnum“ eins lengi og þörf krefur. Það þýðir að lögregla, barnaverndar- og félagsmálayfirvöld komi að málum, afli eins mikilla upplýsinga og unnt er, bjóði stuðning og kynni bæði brotaþolum og gerendum þau úrræði sem eru í boði, strax í upphafi máls. Þá er málum fylgt eftir, annars vegar með sambandi félagsþjónustu við brotaþola innan þriggja daga frá atburði og síðan með heimsókn lögreglu og félagsþjónustu að jafnaði innan viku frá atburði. Þessi aðferðafræði hefur almennt mælst vel fyrir hjá brotaþolum sem telja sig fá meiri stuðning og ráðgjöf en áður,“ segir þeir í tilkynningunni.
Mest lesið Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Laun bæjarfulltrúa lækkuð Innlent Saltkjötið háskalegt heilsutæpum Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent Ók einn frá höfninni og kom til baka tæpri klukkustund síðar Innlent Flestir vilja Katrínu Jakobs sem forsætisráðherra Innlent Slökkva á áróðurshátölurunum Erlent Prófa HIV-bóluefni Erlent Fleiri fréttir Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Sjá meira