Helgi Magnús neitar því ekki að rannsóknin snúi að óeðlilegum samskiptum hans við brotamenn og segir að málið verði rannsakað af embætti ríkissaksóknara með aðstoð lögreglu.
„Við höfum lögregluna okkur til aðstoðar, en ekki lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.“
Hann segir mál lögreglumannsins og yfirmanns í fíkniefnadeild lögreglunnar sem var fluttur til í starfi fyrr á árinu og ítarlega hefur verið fjallað um á Vísi ekki nátengd.
„Málin eru ekki nátengd og eru ekki rannsökuð sem eitt og sama málið. Ég get þó ekki tjáð mig um það, hvort við séum að rannsaka hitt málið.“

Sá lögreglumaður er enn við störf innan lögreglu en hann gegndi í töluverðan tíma yfirmannsstöðu bæði hjá upplýsingadeild og fíkniefnadeild. Slíkt fyrirkomulag er afar óvenjulegt og gagnrýnisvert að mati dansks yfirlögregluþjóns.
Var hann færður til í starfi árið 2015 eftir að ábendingar bárust í enn eitt skiptið um að hann væri að leka upplýsingum til glæpamanna. Eftir að hafa gegnt stöðu í deild ótengdri rannsóknum á fíkniefnamálum var hann færður í deild sem kemur að símahlustunum.
Urgur var hjá starfsfólki lögreglu vegna þessa samkvæmt heimildum fréttastofu og þótti ákvörðunin óskiljanleg. Með þeirri tilfærslu var hann aftur komin í stöðu til að hafa áhrif á rannsóknir fíkniefnamála.

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir tillögur nefndarinnar ekki duga. Mikilvægt sé að koma upp sjálfstæðri stofnun sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar og hafi frumkvæði að því að skoða einstök mál.
Sjá einnig:Blað brotið ef upp kemst mútumál hjá íslensku lögreglunni
„Embætti lögreglu er mannleg stofnun. Það eru brestir í öllum mannlegum stofnunum. Lögreglan er hins vegar eina mannlega stofnunin sem hefur heimild til að beita líkamlegu valdi. Í því sambandi er mikilvægt að hafa eftirlit með lögreglumönnum.
Eftirlitið sem við viljum er miklu víðtækara en einfaldlega það hvort þeir fara eftir hegningarlögum eða ekki,“ segir Helgi Hrafn.
„Það er svo mikilvægt að fyrirbyggja þessa hluti og að lögreglumenn viti að þeir séu ekki einu varðmennirnir, heldur séu líka aðrir varðmenn að fylgjast með varðmönnunum."