Fimm íslenskir stjörnuleikmenn á Norðurlandamótinu í ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júlí 2016 18:00 Arnór Sveinsson og Sigvaldi Eggertsson voru báðir valdir í úrvalslið sextán ára drengja á NM 2016. Mynd/KKÍ
Ísland átti fimm leikmenn af tuttugu í úrvalsliðum Norðurlandamóts unglinga í körfubolta í ár eða 25 prósent leikmanna sem sköruðu framúr. Flestir stjörnuleikmenn komu úr sextán ára landsliði karla sem lenti þó bara í fimmta sæti á mótinu. Hin þrjú liðin áttu síðan einn fulltrúa hvert. Leikmennirnir sem komust í úrvalsliðinu voru eftirtaldir: Birna Valgerður Benónýsdóttir í sextán ára liði stúlkna, Sigvaldi Eggertsson í sextán ára liði drengja, Arnór Sveinsson í sextán ára liði drengja, Sylvía Rún Hálfdanardóttir í átján ára liði stúlkna og Þórir Guðmundur Þorbjarnarson í átján ára liði drengja.Þórir Guðmundur Þorbjarnarson kemur úr KR en hann hjálpaði 18 ára landsliðinu að vinna Norðurlandameistaratitilinn. Þórir var með 33 stig í úrslitaleiknum en hann var stigahæsti leikmaður mótsins með 20,0 stig í leik auk þess að taka 6,6 fráköst og gefa 2,6 stoðsendingar að meðaltali.Sylvía Rún Hálfdanardóttir kemur úr Haukum en hún hjálpaði 18 ára landsliði kvenna að vinna bronsið á Norðurlandamótinu. Hún tók flest fráköst á mótinu, 9,2 í leik, auk þess að skora 16,6 stig og stela 3,6 boltum að meðaltali.Birna Valgerður Benónýsdóttir kemur úr Keflavík en hún og stelpurnar í sextán ára landsliðinu enduðu í fjórða sætinu. Birna var í öðru sæti bæði í stigum (17,4 í leik) og fráköstum (10,0 í leik). Arnór Sveinsson kemur úr Keflavík og Sigvaldi Eggertsson kemur úr ÍR. Þeir urðu í fimmta sæti með sextán liði stráka.Arnór Sveinsson var stigahæsti maður mótsins með 19.0 stig í leik auk þess að taka 5,8 fráköst og skora 2,2 þrista í leik. Arnór skoraði meðal annars 38 stig í 28 stiga sigri á Svíum og var með yfir 30 stig að meðaltali í sigurleikjum íslenska liðsins.Sigvaldi Eggertsson var með 15,4 stig og 6,0 fráköst að meðaltali og í öðru sæti í framlagi með 13,8 framlagsstig í leik. Sigvaldi var með yfir einn í öllum tölfræðiþáttum þar á meðal stolnum boltum, vörðum skotum, stoðsendingum og þriggja stiga körfum.Allur íslenski hópurinn á NM 2016.Mynd/KKÍ
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira