Dæmdur fyrir að hlaupa með fangið fullt úr Cintamani-búð í Reykjavík Birgir Olgeirsson skrifar 13. september 2016 13:50 Maðurinn tók í fangið útivistarfatnað samtals að verðmæti 340 þúsund krónur og hljóp með hann úr Cintamani-búðinni án þess að greiða fyrir. Vísir
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fertugsaldri til fjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnalagabrot, nytjastuld, gripdeild og umferðarlagabrot. Var hann auk þess sviptur ökuréttindum ævilangt. Hann játaði skýlaust brot sín fyrir dómi sem voru öll framin í fyrra. Þar á meðal: Fíkniefnalagabrot, með því að hafa sunnudaginn 4. október á bifreiðastæði Smáratorgs við Dalveg í Kópavogi, haft í vörslum sínum 19,99 g af amfetamíni, sem lögregla fann eftir leit á manninum. Nytjastuld, með því að hafa fimmtudaginn 10. desember tekið bifreið á bifreiðastæði Umferðarmiðstöðvar BSÍ og ekið um götur höfuðborgarsvæðisins, en lögreglumenn höfðu síðan afskipti af manninum sunnudaginn 13. desember þar sem hann ók bifreiðinni austur Hverfisgötu að Lindargötu. Umferðarlagabrot, með því að hafa sunnudaginn 13. desember ekið bifreið sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Nytjastuld og umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 19. desember tekið bifreið heimildarlaust við Holtsgötu Reykjavík og ekið bifreiðinni sviptur ökurétti að Hringbraut, en lögreglumenn fundu bifreiðina þar skömmu síðar. Gripdeild, með því að hafa þriðjudaginn 22. desember í verslun Cintamani Reykjavík, tekið í fangið útivistarfatnað samtals að verðmæti kr. 340.920 og hlaupið með fatnaðinn út úr versluninni án þess að greiða fyrir. Maðurinn átti að baki sakaferil og því þótt fjögurra mánaða fangelsisvist hæfileg refsing.
Mest lesið Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Fleiri fréttir Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Sjá meira