Í frétt BBC segir að fólkið hafi látist í bænum Mina, um fimm kílómetrum austur af Mekka.
Hajj, trúarhátíð múslíma í Mekka stendur nú yfir og er búist við um þremur milljónum pílagríma á næstu dögum.
Múslímar þurfa að fara í pílagrímsferð til Mekku, hinnar heilagrar borgar í Sádi-Arabíu og fæðingarborg Múhameðs spámanns, að minnsta kosti einu sinni á ævinni ef fjárhagur og heilsa leyfa.
Í borginni Mina eru þrjár súlur sem pílagrímarnir kasta steinum að til að minnast þess þegar djöfullinn freistaði Ísmaels og Abrahams.
107 manns fórust við undirbúning hajj-hátíðarinnar fyrr í mánuðinum þegar krani féll á fjölda fólks við stóru moskuna í Mekka.
BBC hefur tekið saman lista yfir mannskæðustu slysin í tengslum við hajj-hátíðina síðustu árin:
- 2015: 107 manns fórust þegar byggingakrani féll við stóru moskuna í Mekka
- 2006: 364 pílagrímar láta lífið í troðningi þegar steinum var kastað að súlunum í Mina
- 1997: 343 pílagrímar láta lífið og 1.500 slasast í eldsvoða
- 1994: 270 láta lífið í troðningi
- 1990: 1,426 pílagrímar láta lífið í troðningi í göngum sem liggja að heilögustu stöðunum í Mekka
- 1987: 400 manns farast í aðgerðum sádi-arabískra yfirvalda gegn mótmælendum

Saudi authorities say death toll from stampede at Hajj pilgrimage rises to 453 - @AP http://t.co/m2iKx2RBQk
— Breaking News (@BreakingNews) September 24, 2015