Fleiri stjórnarþingmenn vilja slíta viðræðum Sveinn Arnarsson skrifar 7. janúar 2015 07:00 Gunnar Bragi Sveinsson er með áform um að leggja fram þingsályktun um afturköllun ESB-tillögunnar. fréttablaðið/pjetur
Flestir þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem Fréttablaðið náði tali af í gær töldu afar líklegt að þeir myndu styðja tillögu um að afturkalla umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Hins vegar eru skiptar skoðanir um málið meðal þingmannanna. Þrír þingmenn flokksins sem Fréttablaðið náði tali af í gær voru ekki fylgjandi tillögu utanríkisráðherra og töldu hana ekki koma á réttum tímapunkti. Tillaga til þingsályktunar þess efnis að draga til baka umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu verður að öllum líkindum lögð fram á vorþingi. Tillagan er á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir yfirstandandi vetur og hefur forsætisráðherra sagt að tillagan komi til efnislegrar meðferðar Alþingis. Líklegt þykir að allir þingmenn Framsóknarflokksins séu hlynntir tillögu utanríkisráðherra um viðræðuslit. Í stjórnarsáttmála Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks segir að gerð verði skýrsla um aðildarviðræður, sem gefin var út í október 2013, og að ekki verði haldið áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Ekki náðist í Ragnheiði Ríkharðsdóttur sem lengi hefur verið hlynnt því að aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði lokið með samningi og hann borinn undir þjóðina.
Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Þyrlan enn ekki fundin og leit úr lofti stöðvuð Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Sjá meira