Kári þarf að greiða Karli Jóhann Óli Eiðsson skrifar 17. desember 2015 16:47 Þeir Karl og Kári
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, þarf að greiða hæstaréttardómaranum Karli Axelssyni rúmar tvær milljónir króna vegna vinnu sem hann innti af hendi fyrir Kára á árunum 2011 og 2012. Tveir fyrrverandi héraðsdómarar auk dómstjóra voru setudómarar í málinu vegna vanhæfi annarra hæstaréttardómara. Ágreiningurinn mannanna var sprottinn af vinnu sem Karl, sem á fyrrgreindum árum starfaði sem lögmaður og var einn eigenda LEX lögmannsstofu, og aðrir lögmenn á stofunni unnu fyrir Kára. Í ágúst 2012 sagði hann sig frá málinu. Þá átti Kári eftir að greiða rúma 1,7 milljónir vegna vinnu lögmannanna. Upphæðina taldi Kári og háa og vísaði málinu til úrskurðarnefndar lögmanna en hann kvartaði meðal annars yfir því að Karl hefði unnið verkið með öðrum, kvartað var yfir tímafjölda og því að hann hefði sagt sig frá verkinu án aðvörunar. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að Kári ætti að greiða Karli. Málinu var áfrýjað til héraðsdóms sem staðfesti niðurstöðu nefndarinnar. Hið sama hefur Hæstiréttur nú gert. Forstjórinn byggði mál sitt meðal annars á því að úrskurðarnefndin hefði farið út fyrir valdsvið sitt og að Karl hefði framselt málflutningsumboð sitt til annarra lögmanna á stofunni. Um fyrri málsástæðuna sagði rétturinn að heimildin til að bera ágreining um endurgjald undir úrskurðarnefndina tæki bæði til vinnu lögmannsins sjálfs og þeirra sem ynnu á hans ábyrgð. Hefði úrskurðarnefndin því ekki farið út fyrir valdsvið sitt. „Óumdeilt er að áfrýjanda var frá upphafi ljóst að lögmaðurinn Þórhallur Bergmann myndi vinna að málinu með stefnda. Reikningar, vinnuskýrslur og tölvupóstsamskipti vegna málsins bera og með sér aðkomu hans að málinu og ósannað er að það hafi sætt sérstökum andmælum af hálfu áfrýjanda. Stefndi hafði yfirumsjón með vinnunni og bar á henni ábyrgð gagnvart áfrýjanda,“ segir orðrétt í niðurstöðum dómsins. Sú málatilhögun hafi ekki falið í sér framsal á málflutningsumboði. Auk þess að greiða kröfu Karls var Kári dæmdur til að greiða málskostnað fyrir Hæstarétti, alls 400.000 krónur.
Tengdar fréttir Kári sakar hæstaréttardómara um að hafa logið fyrir rétti Allir hæstaréttardómarar vanhæfir í máli Kára Stefánssonar og Karls Axelssonar. Kári vill að þeir „gyrði sig í brók.“ 23. október 2015 07:43 Kári Stefánsson neitar að borga reikninginn Aðalmeðferð í máli Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, gegn Karli Axelssyni, hæstaréttarlögmanni hjá lögmannsstofunni Lex, fór fram fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 21. október 2014 17:15 Kári þarf að greiða reikninginn Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, þarf að greiða Karli Axelssyni, lögmanni og settum hæstaréttardómara, tvær milljónir króna. 8. desember 2014 10:32 Karl skipaður hæstaréttardómari Karl Axelsson fékk skipunarbréf sitt afhent í innanríkisráðuneytinu í dag. 9. október 2015 15:59 Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Von, hugrekki og virðing við lok lífs Samstarf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira
Kári sakar hæstaréttardómara um að hafa logið fyrir rétti Allir hæstaréttardómarar vanhæfir í máli Kára Stefánssonar og Karls Axelssonar. Kári vill að þeir „gyrði sig í brók.“ 23. október 2015 07:43
Kári Stefánsson neitar að borga reikninginn Aðalmeðferð í máli Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, gegn Karli Axelssyni, hæstaréttarlögmanni hjá lögmannsstofunni Lex, fór fram fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 21. október 2014 17:15
Kári þarf að greiða reikninginn Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, þarf að greiða Karli Axelssyni, lögmanni og settum hæstaréttardómara, tvær milljónir króna. 8. desember 2014 10:32
Karl skipaður hæstaréttardómari Karl Axelsson fékk skipunarbréf sitt afhent í innanríkisráðuneytinu í dag. 9. október 2015 15:59