Umræða um fjórtán ára ólétt flóttabarn í Noregi Atli Ísleifsson skrifar 9. desember 2015 13:08 Þúsundir flóttamanna hafa komið til Noregs síðustu mánuði. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/AFP
Nokkur umræða hefur skapast í Noregi eftir að þarlend yfirvöld brugðust ekkert við eftir að par frá Sýrlandi sótti um hæli í landinu fyrir tveimur vikum. Parið á átján mánaða son og á von á öðru barni, en mamman er einungis fjórtán ára gömul.Aftenposten greinir frá því að það hafi fyrst verið eftir að starfsmenn á heimili fyrir hælisleitendur bentu á lágan aldur stúlkunnar sem yfirvöld brugðust við. Stúlkan á að hafa verið tólf ára þegar þau giftust, en slíkt er ólöglegt bæði í Sýrlandi og Noregi. Maðurinn er 23 ára gamall og hafa norsk barnaverndaryfirvöld nú málið til meðferðar. Mikil umræða hefur hins vegar skapast um hvernig menn hafi séð gegnum fingur sér þar sem staða parsins stangast á við ýmis lagaákvæði, þeirra á meðal kynferðislega misnotkun. Mannfræðingurinn Unni Wikan segir í samtali við NRK að það geti reynst stúlkum í þessari stöðu enn verr ef yfirvöld skipti sér af þar sem skilnaður sé ekki litinn vægum augum innan íslam. Wikan segir að sýrlenska borgarastríðið hafi gert stöðu stúlkna sem misst hafa föður sinn mjög erfiða, og því hafi hjúskapur sem þessi orðið algengari. Hjúskapurinn veiti stúlkunum ákveðið öryggi. „Ef stúlkunni líður vel í þessu hjónabandi, eiga norsk yfirvöld að styðja við bakið á fjölskyldunni, þrátt fyrir að hún sé barnabrúður.“ Í leiðurum fjölda norskra blaða kemur fram að galið sé að mála manninn í þessu máli sem glæpamann. Solveig Horne, barna- og jaftréttismálaráðherra Noregs, harmar að yfirvöld hafi ekki brugðist strax við, en bendir á að nú sé hlúð að stúlkunni. „Þetta mál minnir á mikilvægi þess að vera með gott verklag og gott samstarf til að koma megi í veg fyrir slíkt mál í framtíðinni,“ segir hún í samtali við NTB.
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Fleiri fréttir Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Sjá meira