Heilsa

Fjögurra vikna sumaráskorun - vika 3

Nanna Árnadóttir skrifar
Fáðu vini þína með þér í lið.
Fáðu vini þína með þér í lið. Vísir/Getty
Nú er komið að þeim tímapunkti í áskoruninni þar sem þú gætir verið að hugsa um að setja skóna á hilluna, að hreyfing eigi ekki við þig og að þetta taki einfaldlega of langan tíma af nú þegar yfirfullri dagskrá dagsins. Ég ætla að stoppa þig þarna.

Það er ekki rétt!

Hreyfing á við alla. Okkur er eðlislægt að hreyfa okkur og ef við gerum það ekki verðum við ekki langlíf. 30-60 mínútur eru ekki nema 2-4% af sólarhringnum. Það geta allir gefið sér 2-4% af sínum tíma til þess að sinna heilsunni. Hér eru engar afsakanir teknar gildar.

Nú skulum við gefa aðeins í og taka þessa sumaráskorun í nefið, mundu bara að teygja vel eftir hvern dag!

Vísir/Getty
Dagur 1

Í dag ætlarðu bara að gera æfingar. Það eru engin hlaup heldur styrktaræfingar fyrir allan líkamann í þetta skiptið.

Ef þú kannt ekki að gera æfingarnar þá er hægt að fá útskýringar á öllum æfingum einfaldlega með því að gúgla eða fletta æfingunni upp á YouTube. Ef þú hefur ekki aðgang að tölvu fáðu þá einhvern sem þekkir til til þess að hjálpa þér.

Þú ætlar að taka fjóra hringi af eftirfarandi æfingum:

1. 10 hnébeygjur (e. squats)

2. 10 armbeygjur (e. push-ups)

3. 10 framstig á hvorn fót (e. lunges)

4. 10 dýfur á bekk (e. bench dips)

5. 30 sekúndna planka (e. plank)

6. 40 sprellikarlahopp (e. jumping jacks)

Dagur 2

Í dag ætlarðu að gefa aðeins í í hlaupunum. Þú ætlar að byrja á því að ganga rösklega í 5-10 mínútur. Eftir það ætlarðu að hlaupa í eina mínútu og þú ætlar að hlaupa aðeins hraðar en þú hefur gert hingað til. Síðan gengurðu í tvær mínútur áður en þú byrjar að hlaupa aftur í eina mínútu. Þetta ætlarðu að gera samtals 8 sinnum, þ.e. þú hleypur samtals 8 sinnum í 1 mínútu og gengur 8 sinnum í tvær mínútur. 

Dagur 3

Ég vona að líkaminn sé í lagi og harðsperrurnar farnar að minnka. Ég get alveg lofað því að það verða ekki alltaf harðsperrur, málið snýst bara um að gefast ekki upp og hætta að hreyfa sig. 

Í dag ætlarðu að fara í sund þar sem hreyfingin í vatninu er auðveldari en venjulega. Syntu 500 metra og farðu svo í pottinn eftir á. Þú átt það skilið!

Dagur 4

Ef þú hefur fylgt öllum æfingunum í þessari viku þá hefurðu tekið vel á því. Í dag er því eins konar virk hvíld þar sem þú ætlar að fara í 30 mínútna göngutúr til þess að fá blóðflæðið af stað en á sama tíma að hvíla líkamann frá öðru átaki. 

Þú færð þó aðra áskorun fyrir daginn og það er að slökkva á öllum tækjum að minnsta kosti 30 mínútum fyrir svefn.

Ekki kíkja á Facebook í símanum rétt áður en þú lokar augunum. Lestu frekar bók, talaðu við makann eða slakaðu einfaldlega aðeins á áður en þú ferð að sofa. 

Vísir/Getty
Dagur 5

Í dag ætlarðu að gera sömu æfingar og þú gerðir á degi 1 í þessari viku, nema hvað að þú ætlar að fara 5 hringi í staðinn fyrir fjóra. Mundu bara að teygja!

Dagur 6

Þá eru það aftur hlaupin. Þú ætlar að nota sömu aðferð og þú gerðir á degi 2 í þessari viku, af því að það gekk svo vel síðast :) Þegar þú hefur lokið við hlaupin skora ég á þig að leggjast aðeins niður og njóta þess að finna fyrir vellíðunartilfinningunni sem flýtur um líkamann eftir mikil og góð átök. 

Dagur 7

Í dag ætlarðu að fara aftur í fjallgöngu. Þú getur farið á sama fjall og síðast eða farið eitthvert annað, eins og t.d. upp á Helgafell. Þú getur snúið við ef þú vilt ekki fara alveg upp á topp en núna ætlarðu að miða við að þetta sé að minnsta kosti 40 mínútna hreyfing. Klæddu þig vel og njóttu þess að vera uppi á fjalli, það er nefnilega svo stórkostleg tilfinning. 

Til þess að ljúka vikunni ætlarðu svo, áður en þú ferð að sofa, að hugsa um þrjá hluti sem þú ert þakklát/ur fyrir. Þú getur annaðhvort skrifað þá niður eða sagt þá upphátt við maka eða einhvern annan. Með þessu móti ferðu að sofa með bros á vör og þakklæti í hjarta.

Nú er einungis vika eftir og ég hlakka til að leiða þig í gegnum hana með stæl!

Sjáumst í næstu viku :)


Tengdar fréttir

Fjögurra vikna sumaráskorun

Sumarið er tími afslöppunar en þó ekki hreyfingarleysis og er því kjörið að nýta ferska loftið til að sprikla smá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×