Umhverfisvænn sólarkísill Alain Turenne og Dr. Matthias Heuer skrifar 18. maí 2015 00:00 Til að beisla sólarljósið til framleiðslu rafmagns þarf hreinsaðan kísil, svokallaðan sólarkísil. Silicor Materials vinnur nú að því að reisa á Grundartanga í Hvalfirði verksmiðju þar sem hreinsa á kísil til notkunar í sólarrafhlöð. Starfsemi verksmiðjunnar mun byggja á nýrri tækni, sem hefur verið í þróun undanfarinn áratug, sem mun tryggja umhverfisvænni, einfaldari og ódýrari framleiðslu auk þess að útheimta aðeins þriðjung þeirrar orku en sú tækni sem hreinsun kísíls hefur byggt á hingað til.Hvernig er framleiðsluferlið? Til þess að hreinsa kísil, hitum við hráefnin, kísil og ál, þar til þau bráðna og látum þau síðan kólna þar til kísillinn kristallast. Þetta ferli er endurtekið nokkrum sinnum, og í hvert skipti hreinsast kísillinn betur. Síðan notum við gler til að fjarlægja málmleifar (snefilefni í kísilnum) og náum þannig að framleiða efni sem hentar þörfum sólarorkuiðnaðarins. Vegna þess að menn hafa haft áhyggjur af flúor sem notaður var í litlu magni í glerið í vinnslunni, höfum við hannað framleiðsluferli sem gerir okkur kleift að útiloka flúor alveg frá ferlinu þar sem glerið er notað.Hvað gerir ferlið umhverfisvænt? Árleg framleiðsla verksmiðju Silicor mun nægja til framleiðslu sólarhlaða sem geta séð um 800 þúsund heimilum fyrir raforku. Þannig verður hægt að framleiða umtalsvert meiri raforku með framleiðslu Silicor en verksmiðjan þarf til framleiðslu sinnar. Með öðrum orðum mun notkun íslenskrar orku hafa í för með sér gríðarlegan ávinning fyrir umhverfið á heimsvísu. Ennfremur er framleiðsluferlið sjálft hannað með það fyrir augum að það hafi lítil eða engin áhrif á umhverfið.- Hráefnin okkar: - Hreinn kísill sem er leystur upp í fljótandi áli (engra hjálparefna er þörf, einungis hita). - Framleiðsluferli Silicor notar mun minni orku en hefðbundið framleiðsluferli sólarkísils eða 20-30 kWh á hvert kíló, miðað við allt að 120 kWh á hvert kíló. - 100% af þeirri orku sem við munum nota á Íslandi kemur frá staðbundnum sjálfbærum orkulindum, þar á meðal jarðvarma og fallorku, sem þýðir að verksmiðjan mun hafa eitt minnsta kolefnisspor sem um getur í heiminum hjá verksmiðjum sem hreinsa kísil.- Framleiðsluvörur okkar: - Engar eitraðar aukaafurðir eru framleiddar í ferlinu. Framleiðsluferlið gefur af sér tvær öruggar aukaafurðir: álblöndur sem notaðar eru í bíla- og flugvélaiðnaðinum og álklóríð (PAC) sem er notað við hreinsun vatns. - Framleiðsluferlið sem Silicor hefur þróað hefur enga flúorlosun í för með sér. - Verksmiðja okkar á Íslandi mun losa álíka mikið af gróðurhúsalofttegundinni koltvísýringi og meðalstórt kúabú á Íslandi. Styrkur fyrirhugaðrar verksmiðju Silicor á Grundartanga liggur í hinni nýju tækni sem hlífir umhverfinu og er ekki í andstöðu við lífríki og náttúru. Markmið Silicor er að framleiðsluferillinn falli vel að ríkum áherslum Íslendinga um hreint land og nauðsynlega náttúruvernd. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir Skoðun VII. Aðförin að Ólafi Jóhannessyni Hafþór S. Ciesielski Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Sjá meira
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar