Fyrirmyndardagurinn Bryndís Theódórsdóttir skrifar 14. apríl 2015 07:00 Fyrirmyndardagurinn verður haldinn þann 17. apríl næstkomandi og stendur Vinnumálastofnun fyrir deginum. Markmiðið dagsins er að atvinnuleitendur með skerta starfsgetu fái aukin og fjölbreytt tækifæri á vinnumarkaði. Á Fyrirmyndardeginum bjóða fyrirtæki og stofnanir atvinnuleitendum sem hafa fengið fá tækifæri á vinnumarkaði að vera gestastarfsmenn í fyrirtækjunum í einn dag eða hluta úr degi. Afar mikilvægt er að fyrirtæki og stofnanir taki þátt í Fyrirmyndardeginum og gefi þannig atvinnuleitendum tækifæri á að kynna sér störf innan ólíkra fyrirtækja. Í fyrra var Fyrirmyndardagurinn haldinn í fyrsta sinn á Íslandi og gekk dagurinn vonum framar og fengu 46 atvinnuleitendur með skerta starfsgetu tækifæri á að vera gestastarfsmenn í 35 fyrirtækjum og stofnunum. Störfin voru fjölbreytt og má þar nefna störf í leikskólum, stjórnsýslu, verslunum, iðnaði, skrifstofum, banka og þjónustu. Almenn ánægja var hjá fyrirtækjum með þetta framtak og fengu fjórir gestastarfsmenn vinnu í kjölfar dagsins en aðrir fengu tækifæri til þess að kynnast nýju starfsumhverfi og auka víðsýni sem nýtist í framhaldi í atvinnuleitinni. Gestastarfsmennirnir voru afar ánægðir með að fá tækifæri til að prófa ný störf og í sumum tilfellum var um draumastarfið að ræða og einnig mynduðust ný kynni sem er ómetanlegt. Ávinningur dagsins er ekki einungis fyrir atvinnuleitendur heldur fá þátttökufyrirtækin tækifæri til þess að kynna störf innan sinna fyrirtækja og um leið að kynnast styrkleikum þeirra sem eru með skerta starfsgetu. Við hvetjum alla til þess að skoða Facebook-síðu Fyrirmyndardagsins en þar eru fréttir, upplýsingar, myndir og annað tengt deginum. Þar má auk þess senda inn fyrirspurnir eða hafa samband við Vinnumálastofnun. Hlökkum til að eiga skemmtilegt samstarf við atvinnuleitendur og fyrirtæki þann 17. apríl næstkomandi.Hefurðu sögu að segja eða skoðun að deila? Ef svo er sendu okkur grein ásamt mynd á netfangið ritstjorn(hja)visir.is Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Fyrirmyndardagurinn verður haldinn þann 17. apríl næstkomandi og stendur Vinnumálastofnun fyrir deginum. Markmiðið dagsins er að atvinnuleitendur með skerta starfsgetu fái aukin og fjölbreytt tækifæri á vinnumarkaði. Á Fyrirmyndardeginum bjóða fyrirtæki og stofnanir atvinnuleitendum sem hafa fengið fá tækifæri á vinnumarkaði að vera gestastarfsmenn í fyrirtækjunum í einn dag eða hluta úr degi. Afar mikilvægt er að fyrirtæki og stofnanir taki þátt í Fyrirmyndardeginum og gefi þannig atvinnuleitendum tækifæri á að kynna sér störf innan ólíkra fyrirtækja. Í fyrra var Fyrirmyndardagurinn haldinn í fyrsta sinn á Íslandi og gekk dagurinn vonum framar og fengu 46 atvinnuleitendur með skerta starfsgetu tækifæri á að vera gestastarfsmenn í 35 fyrirtækjum og stofnunum. Störfin voru fjölbreytt og má þar nefna störf í leikskólum, stjórnsýslu, verslunum, iðnaði, skrifstofum, banka og þjónustu. Almenn ánægja var hjá fyrirtækjum með þetta framtak og fengu fjórir gestastarfsmenn vinnu í kjölfar dagsins en aðrir fengu tækifæri til þess að kynnast nýju starfsumhverfi og auka víðsýni sem nýtist í framhaldi í atvinnuleitinni. Gestastarfsmennirnir voru afar ánægðir með að fá tækifæri til að prófa ný störf og í sumum tilfellum var um draumastarfið að ræða og einnig mynduðust ný kynni sem er ómetanlegt. Ávinningur dagsins er ekki einungis fyrir atvinnuleitendur heldur fá þátttökufyrirtækin tækifæri til þess að kynna störf innan sinna fyrirtækja og um leið að kynnast styrkleikum þeirra sem eru með skerta starfsgetu. Við hvetjum alla til þess að skoða Facebook-síðu Fyrirmyndardagsins en þar eru fréttir, upplýsingar, myndir og annað tengt deginum. Þar má auk þess senda inn fyrirspurnir eða hafa samband við Vinnumálastofnun. Hlökkum til að eiga skemmtilegt samstarf við atvinnuleitendur og fyrirtæki þann 17. apríl næstkomandi.Hefurðu sögu að segja eða skoðun að deila? Ef svo er sendu okkur grein ásamt mynd á netfangið ritstjorn(hja)visir.is
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar