Átta af 50 hvölum drápust ekki strax svavar hávarðsson skrifar 1. apríl 2015 07:15 Frá árinu 2009 hafa 544 langreyðar verið veiddar við Ísland. fréttablaðið/vilhelm
Niðurstaða mælinga á dauðatíma hvala í sumar sýndu að af þeim 50 langreyðum sem rannsóknin náði til drápust 42 þeirra samstundis við það að sprengiskutull hvalveiðimanna Hvals hf. hæfði dýrin. Átta langreyðar drápust ekki samstundis og voru skotnar aftur. Lengst lifði skotið dýr í 15 mínútur áður en það var skotið aftur.Click here for this story in English Þetta er meðal niðurstaðna tveggja norskra dýralækna sem störfuðu um borð í hvalveiðiskipum Hvals hf., í fyrrasumar við mælingar á aflífunartíma í hrefnu- og langreyðarveiðum við Ísland á vegum Fiskistofu. Dýralæknarnir tveir voru valdir sérstaklega en þeir hafa áratugareynslu af slíkum mælingum á hrefnuveiðum Norðmanna. Skýrsla annars þeirra, Dr. Egil Ole Øen, var birt á vef Fiskistofu fyrr í þessum mánuði. Þar kemur fram að ívið hærra hlutfall langreyðar drapst samstundis en á hrefnuveiðum Norðmanna. Eyþór Björnsson fiskistofustjóri vill ekki leggja beint mat á niðurstöður mælinganna, enda Fiskistofa stjórnsýslustofnun, en segir engu að síður að niðurstaðan sé góð í samanburði við niðurstöður Norðmanna. Frekari mælingar á langreyði standa ekki til, en Eyþór segir Norðmenn mæli dauðatíma á sínum skipum á tíu ára fresti. Vegna óhagstæðra veðurskilyrða lágu hrefnuveiðar að mestu niðri þann tíma sem ætlaður var til mælinga á aflífunartíma í hrefnuveiðum. Ráðgerir Fiskistofa að ráða sömu sérfræðinga til þess að gera mælingar á aflífunartíma hrefnu á næsta hrefnuveiðitímabili. Rannsóknin var gerð að ósk Norður-Atlantshafsspendýraráðsins (NAMMCO). Ráðgert er að niðurstöður mælinganna verði kynntar á fundi sérfræðinga um aflífun hvala sem haldinn verður á vegum ráðsins í nóvember á þessu ári. Þá verða niðurstöðurnar bornar saman við sambærilegar mælingar fyrir aðrar hvalategundir og árangur metinn fyrir þær veiðiaðferðir sem notaðar eru.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira