Handbolti

Strákarnir sendu skýr skilaboð til hinna liðanna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þessi svipur leikstjórnandans Snorra Steins Guðjónssonar segir meira en mörg orð.
Þessi svipur leikstjórnandans Snorra Steins Guðjónssonar segir meira en mörg orð. vísir/Eva Björk
Hafi einhver efast þá er öllum nú ljóst að íslenska landsliðið er komið á fullan skrið á HM í handbolta. Loksins, eftir afar erfiða byrjun á mótinu hér í Katar.

Ísland sendi skýr skilaboð til annarra liða í keppninni með því að gera jafntefli gegn Evrópumeisturum Frakklands í Duhail-keppnishöllinni í Doha í gær og undirstrikaði það góða frammistöðu þeirra að þeir gengu allir sem einn svekktir af velli.

Sjá einnig:Einkunnir Gaupa: Þrír nálægt fullu húsi

Úrslitin þýða að strákarnir eru skrefi nær 16-liða úrslitunum og eiga enn raunhæfa möguleika á öðru sæti riðilsins. Fram undan eru afar þýðingarmiklir leikir, fyrst gegn Tékklandi og svo Egyptalandi en miðað við frammistöðuna í gær eru strákarnir til alls líklegir haldi þeir uppteknum hætti.

Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sigurðsson ræða saman.vísir/eva björk
Trúin alltaf til staðar

Leikurinn í gær var spennandi en hann byrjaði á óþægilega kunnuglegum nótum. Strákarnir voru að spila sig í færi en aðeins eitt skot af fyrstu sex rataði á rammann. En þökk sé góðri vörn og frábærri markvörslu Björgvins Páls Gústavssonar fengu sóknarmennirnir tækifæri til að koma sér í gang, sem þeir og gerðu.

„Þetta segir allt um þeirra skapgerð og sýnir úr hverju þeir eru gerðir. Þeir eru með hjartað á réttum stað og með gríðarlegan sigurvilja. Við vitum vel að þeir geta þetta og trúin er til staðar. Þetta var bara tímaspursmál enda kom þetta á endanum,“ sagði landsliðsþjálfarinn Aron Kristjánsson.

Aron Pálmarsson átti frábæran leik og sýndi enn og aftur hversu gríðarlega mikilvægur hann er liðinu. Björgvin Páll Gústavsson var magnaður, Alexander Petersson byrjaði hægt en honum óx ásmegin og þá átti Snorri Steinn Guðjónsson sinn langbesta leik í keppninni.

Vörnin var frábær í leiknum og margir lögðu hönd á plóg. Aron hrósaði svo Ásgeiri Erni Hallgrímssyni fyrir hans framlag í sókninni. „Hann steig upp og tók mikla ábyrgð í kvöld. Það var gott að sjá það. Björgvin var svo sterkur í markinu sem var lykilatriði fyrir okkur.“

Frakkar héldu sér inni í leiknum með markvörslu Thierry Omeyer og kröftugum sóknarleik þegar mest á reyndi í síðari hálfleik. Ísland var þá í miklu basli með að feta þá þröngu línu sem varnarmönnum er sett í þessari keppni og það nýttu Frakkar sér. En allra erfiðast var að eiga við línuspil Frakkanna og hinn ógnarsterka Cedric Sorhaindo á línunni.

vísir/eva björk
Ísskápurinn var erfiður

„Ísskápurinn er hann kallaður,“ bendir Aron á og hristir hausinn. „Hann þarf ekki mikið pláss og þegar dómgæslan er svona er gríðarlega erfitt að finna lausn á þessu. Kannski er hægt að vera klókari en við vorum en strákarnir sýndu mikla þolinmæði. Við náðum að taka þá oft úr jafnvægi með því að breyta nokkrum smáatriðum hjá okkur. Það var gott að hafa klárað þetta með þessu jafntefli þrátt fyrir allt.“

Eftir hina bagalegu byrjun Íslands á mótinu þar sem strákarnir steinlágu fyrir Svíum tóku þeir sig saman í andlitinu og gerðu nóg til að vinna Alsír í næsta leik. En leikurinn í gær var í allt öðrum og miklu betri gæðaflokki.

„Við verðum að vera sáttir við svona frammistöðu. En samt ekkert sáttari en svo að þetta er bara eitt framfaraskref. Næst kemur lykilleikur gegn Tékkum og við verðum að sýna sama sigurvilja og við gerðum í kvöld strax frá fyrstu sekúndu.“


Tengdar fréttir

Snorri Steinn: Við vorum flottir

Snorri Steinn Guðjónsson var ánægður með leik íslenska landsliðsins gegn því franska í Doha í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×