Maðurinn sem handtekinn var á Kjalarnesi var ógnandi með skotvopn á heimili sínu Birgir Olgeirsson skrifar 20. desember 2015 11:02 Maðurinn var handtekinn í bifreið sinni á leið frá vettvangi. Vísir/Stefán
Maðurinn sem handtekinn var á Kjalarnesi í gærkvöldi eftir að lögreglunni hafði borist tilkynning um vopnalagabrot var á sjötugsaldri. Þetta kemur fram í svörum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við fyrirspurn fréttastofu eftir að lögreglan lokaði Brautarholtsvegi á Kjalarnesi í gærkvöldi. Naut lögreglan aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra sem var vopnuð vélbyssum. Voru ökumenn á þessu svæði stöðvaðir af lögreglu sem bað þá um að framvísa skilríkjum og gefa upp ástæðu ferðar. Kristján Ólafur Guðnason, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir tilkynningu hafa borist lögreglunni í gærkvöldi um karlmann á sjötugsaldri sem væri ógnandi í framkomu með skotvopn á heimili sínu ofan við Grundarhverfi á Kjalarnesi. Var tilkynningin metin alvarleg. Var sérsveit ríkislögreglustjóra kölluð til og Brautarholtsvegi lokað af öryggisástæðum um klukkan hálf níu í gærkvöldið. Um einum og hálfum tíma síðar var maðurinn handtekinn í bifreið sinni á leið frá vettvangi. Hann var óvopnaður og hefur fengið viðeigandi aðstoð að sögn lögreglu. Vegurinn var opnaður í kjölfarið. Vopn, þar á meðal skotvopn, voru í framhaldinu haldlögð af lögreglu á heimili hans. Aðgerðum lögreglu lauk um klukkan ellefu í gærkvöldi.
Tengdar fréttir Lögreglan og vopnaðir sérsveitarmenn lokuðu Brautarholtsvegi í kvöld Grunur var uppi um vopnalagabrot og hótanir. Ökumenn stöðvaðir og beðnir um að framvísa skilríkjum og gefa upp ástæðu ferðar. 19. desember 2015 22:52 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira
Lögreglan og vopnaðir sérsveitarmenn lokuðu Brautarholtsvegi í kvöld Grunur var uppi um vopnalagabrot og hótanir. Ökumenn stöðvaðir og beðnir um að framvísa skilríkjum og gefa upp ástæðu ferðar. 19. desember 2015 22:52