BMW 9-lína og i6 árið 2020 Finnur Thorlacius skrifar 22. desember 2015 15:54 Nýr BMW 9 gæti fengið útlit BMW Gran Lusso Coupe Concept.
Orðrómur um smíði BMW á 9-línu hefur verið uppi lengi en ný þykjast bílablaðamenn víða um heim hafa komist að alvöru áformum um smíði hans og að hann eigi að koma á markað árið 2020. Hann á að vera byggður á lengri útgáfu 7-línunnar, vera aðeins fjögurra sæta bíll en með fjórar hurðir og vera með coupe-lagi. Ekki liggur ljóst fyrir hvaða vélbúnað BMW hefur hugsað í þennan nýja bíl en líklegt er að hann fái V8 með tveimur forþjöppum og sex strokka vél með rafmótorum til aðstoðar. Einnig hefur heyrst að BMW ætli að vopna hann með V12 vél sem yrði 650 hestöfl og fengi hann nafnið BMW M960i eða BMW M9. Þá kemur víst einnig til greina að bjóða bílinn eingöngu drifinn rafmagni og það væri sama drifrás og Rolls Royce, undirmerki BMW, er að þróa í næstu kynslóð Rolls Royce Phantom. Talandi um rafmagnsbíla þá stendur einnig til hjá BMW að smíða i6 rafmagnsbíl og verður hann ekki mikið stærri en núverandi i3 rafmagnsbíll, en á gerbreyttum undirvagni sem sérhannaður er fyrir rafmagnsbíla. Bíllinn verður að mestu smíðaður úr koltrefjum og mun fást með tveimur eða fjórum rafmótorum og drægni bílsins verður mjög mikil.
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Innlent Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Erlent Hart sótt að fjármálaráðherra Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Dælan anni ekki vatnsmagni Innlent