Grindavík búið að finna Kana fyrir næsta tímabil | Páll Axel snýr aftur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. júní 2015 10:34 Harold í baráttunni við Jabari Parker, núverandi leikmann Milwaukee Bucks í NBA-deildinni. vísir/getty
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur gert samning við Bandaríkjamanninn Hector Harold. Þetta kemur fram á heimasíðu Grindavíkur. Harold er 24 ára gamall og nýútskrifaður úr Vermont-háskólanum sem er 1. deildar skóli í America East deildinni. Hann var með 8,1 stig og 3,9 fráköst að meðaltali í leik á síðasta tímabili. Harold er 2,01m á hæð og mun spila stöðu miðherja hjá Grindavík en hann spilaði sem framherji í háskóla. Hann er sagður fjölhæfur leikmaður með góða boltatækni og sterkur í vörninni. Harold kemur til landsins í ágúst. Þá er Páll Axel Vilbergsson kominn aftur til Grindavíkur en hann hefur leikið með Skallagrími í Borgarnesi undanfarin tvö tímabil. Páll Axel, sem er 37 ára, er stórt nafn í sögu Grindavíkur en hann varð tvisvar sinnum Íslandsmeistari með liðinu á sínum tíma (1996 og 2012). Páll Axel var með 14,2 stig og 5,7 fráköst að meðaltali í leik með Skallagrími á síðasta tímabili en hann setti niður 40,0% af þriggja stiga skotum sínum í vetur. Páll Axel er ein besta skytta sem Ísland hefur átt en hann er eini leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildarinnar sem hefur sett niður 1000 þrista. Grindavík hafnaði í 8. sæti Domino's deildarinnar á síðasta tímabili en liðið tapaði 3-0 fyrir KR í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.Páll Axel með Íslandsbikarinn ásamt Guðmundi Bragasyni, núverandi aðstoðarþjálfara og fyrrverandi fyrirliða Grindavíkur.vísir/ÓskarÓ
Dominos-deild karla Mest lesið Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Sjá meira