Haukarnir eru 4-0 með bakið upp við vegg Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2015 11:30 Haukur Óskarsson. Vísir/Vilhelm
Haukar minnkuðu muninn í 2-1 í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Tindastól þegar liðið sótti sigur í gærkvöldi í Síkið á Sauðárkróki. Þetta var fjórði sigur Haukaliðsins í röð í leik þar tap hefði þýtt sumarfrí því liðið kom til baka eftir að hafa lent 2-0 undir á móti Keflavík í átta liða úrslitunum. Haukaliðið vann þrjá síðustu leiki sína á móti Keflavík þar sem liðið var að spila fyrir lífi sínu í úrslitakeppninni. Haukarnir voru aftur búnir að koma sér í sömu stöðu þegar þeir mættu á Sauðárkrók í gærkvöldi en spiluðu einn sinn besta leik í vetur og unnu leikinn með 14 stigum. Haukur Óskarsson hefur verið öflugur í þessum leikjum upp á líf eða dauða í úrslitakeppninni í ár en hann skoraði samt öll 17 stigin sín á Króknum í gær í seinni hálfleiknum. Haukur klikkaði á öllum fjórum skotum sínum í seinni hálfleik en aðeins einu skoti af sjö í seinni hálfleik þar sem hann skoraði 17 stig. Haukur hefur skorað 20,5 stig að meðaltali í leikjunum þar sem tap hefði þýtt sumarfrí en 10,5 stig að meðaltali í leikjunum sem Haukarnir "máttu" tapa.Leikir Hauka í úrslitakeppninni 2015 með bakið upp við vegg:8 liða úrslit, leikur 3 27. mars ÁsvellirHaukar - Keflavík 100-88Atkvæðamestir: Haukur Óskarsson 23 stig/7 fráköst, Alex Francis 22 stig/13 fráköst/6 stoðsendingar, Emil Barja 16 stig/10 stoðsendingar, Kári Jónsson 15 stig/8 stoðsendingar, Kristinn Marinósson 11 stig.8 liða úrslit leikur 4 30.mars KeflavíkKeflavík - Haukar 73-80Atkvæðamestir: Alex Francis 21 stig/15 fráköst, Haukur Óskarsson 19 stig/6 fráköst, Kári Jónsson 16 stig, Kristinn Marinósson 15 stig/9 fráköst.8 liða úrslit, leikur 5 2. apríl ÁsvellirHaukar - Keflavík 96-79Atkvæðamestir: Alex Francis 30 stig/8 fráköst/5 stoðsendingar, Haukur Óskarsson 23 stig/7 fráköst, Kári Jónsson 16 stig, Emil Barja 10 stig/7 fráköst/7 stoðsendingar/6 stolnir, Kristinn Marinósson 9/8 fráköst.Undanúrslit, leikur 3 13. apríl, SauðárkrókurTindastóll - Haukar 79-93Atkvæðamestir: Emil Barja 19 stig/15 fráköst/7 stoðsendingar, Alex Francis 18 stig/5 fráköst, Haukur Óskarsson 17 stig, Kári Jónsson 10 stig/4 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Sjá meira