Matur

Ljúffengur platti sem gleður bæði auga og bragðlaukana

Eva Laufey Kjaran skrifar
visir/evalaufey
Anti Pasti platti og Ítalskt brauð
Anti Pasti platti

Hráskinka

Þistilhjörtu

Ólífur, svartar og grænar

Pestó

Ofnbakaður Camembert með pekanhnetum og hunangi

Primadonna eða annar góður ostur

Góð sulta t.d. rifsberja með ostunum

Focaccia með hvítlauk og rósmarín

Góð ólífuolía

Maldon salt

Focaccia með hvítlauk og rósmarín

900 g hveiti

2 msk hunang

½ tsk. Salt

100 g smjör

500 ml mjólk

4 tsk þurrger

3 – 4 msk. Ólífuolía

4 hvítlauksrif, smátt skorin

2 msk. Rósmarín, smátt saxað

Aðferð:

Hitið mjólkina í potti við vægan hita (mjólkin á að vera volg).

Bætið þurrgeri og 2 msk af hunangi út í mjólkina og látið standa í 4 – 5 mínútur.

Bræðið smjör við vægan hita.

Blandið öllu saman og hnoðið deigið vel eða þar til deigið er slétt og sprungulaust. Þá er deigið látið hefast undir viskastykki þar til það hefur tvöfaldast að stærð eða í um það bil 50 – 60 mínútur.

Því næst er ofnskúffa smurð með ólífuolíu, deigið sett í skúffuna og því þrýst jafnt út í alla kanta.

Skerið niður hvítlauk og stingið hvítlauksrifum og svörtum ólfum í deigið. Saxið niður ferskt rósmarín og blandið saman við ólífuolíu. Hellið kryddblöndunni og sáldrið smá sjávarsalti yfir deigið.

Bakið brauðið við 200 °C í 15-20 mínútur eða þar til brauðið er orðið gullinbrúnt.

Missið ekki af Matargleðinni öll fimmtudagskvöld á Stöð 2.

Tengdar fréttir

Stökkir kjúklingabitar í Kornflexmulningi

Eitt af því besta sem ég fæ eru stökkir kjúklingabitar með góðri sósu. Það er fátt sem jafnast á við safaríka, stökka og bragðmikla kjúklingabita sem færa manni gleði við hvern bita.

Ómótstæðilegir amerískir réttir

Eva Laufey er mjög hrifin af amerískri matargerð og var sú matargerð innblástur í síðasta þætti af Matargleði Evu.

Ofnbakað mac & cheese með beikoni

Í síðasta þætti lagði ég áherslu á rétti sem koma frá Bandaríkjunum og makkarónur með osti er einn þekktasti réttur Bandaríkjamanna og það er ekki að ástæðulausu. Pasta með beikoni, kryddjurtum, osti, meiri osti og rjóma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×