Grísku þingkosningarnar: Syriza mælist með minniháttar forskot í könnunum Atli Ísleifsson skrifar 18. september 2015 22:46 Alexis Tsipras, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Syriza. Vísir/EPA
Síðustu kosningafundirnir fyrir grísku þingkosningarnar voru haldnir í dag, en Grikkir ganga að kjörborðinu á sunnudag.Í frétt BBC kemur fram að skoðanakannanir bendi til þess að mjótt verði á munum milli vinstriflokksins Syriza, flokks Alexis Tsipras, og hægriflokksins Nýs lýðræðis. Því bendi allt til þess að samsteypustjórn verði mynduð að loknum kosningum. Tsipras sagði af sér embætti forsætisráðherra í síðasta mánuði eftir að hafa fengið samning Grikklandsstjórnar við lánardrottna sína samþykktan í gríska þinginu. Sagði hann nauðsynlegt fyrir flokkinn og hann sjálfan að sækja sér nýtt umboð. Hver svo sem mun taka við embætti forsætisráðherra að loknum kosningum mun þurfa að framfylgja samningnum sem Grikkir gerðu við Evrópusambandið um aðhaldsaðgerðir í skiptum fyrir frekari lán. Stuðningsmenn Tsipras komu saman í miðborg Aþenu í dag og sagði forsætisráðherrann fyrrverandi samkomuna senda skilaboð staðfestu og sigurs. „Á sunnudag stöndum við frammi fyrir örlagaþjóðaratkvæðagreiðslu – að binda enda á gamalt kerfi stjórnmála sem verndar ólígarka og spillingu,“ sagði Tsipras á Twitter-síðu sinni. Vangelis Meimarakis, leiðtogi Nýs lýðræðis, réðst hins vegar harðlega á Syriza og sakaði flokkinn um „fölsk loforð“ í aðdraganda síðustu kosninga þar sem flokkurinn hét því að binda enda á aðhaldsaðgerðirnar.
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Erlent Fleiri fréttir Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Sprengja sprakk við hótel Macron í Damaskus Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetningar Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Fimmtán látnir í aurskriðum og flóðum í Kína Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán