Íslandsvinaplötur ársins 2015 Jóhann Óli Eiðsson skrifar 22. janúar 2015 12:00 James Blake vísir/getty
Fjölmargir tónlistarmenn hafa upplýst að nýs efnis sé að vænta frá þeim á árinu og er gróska í tónlistarheiminum mikil. Þeirra á meðal er fjöldinn allur sem spilað hefur hér á landi. Fréttablaðið tók saman lista yfir tíu spennandi plötur Íslandsvina sem koma út á árinu.James Blake - Radio Silence Þriðja plata hins breska James Blake er væntanleg á árinu. Samnefnd fyrsta plata kappans kom út árið 2011 og var fylgt eftir með útkomu Overgrown árið 2013. Sama ár spilaði Blake á Sónarhátíðinni í Reykjavík en báðar plötur hans voru tilnefndar til Mercury verðlauna og sú síðari hlaut þau. Ekki er vitað hvenær árs platan er væntanleg en upplýst var á BBC Radio 1 að hún hefði hlotið nafnið Radio Silence.Modest Mouse - Strangers to Ourselves Bandaríska sveitin Modest Mouse spilaði á tónleikum á Gauki á Stöng árið 2001. Þar sem sveitin þurfti að ná flugi heim um nóttina hitaði hún upp fyrir sjálfa sig og Maus fylgdi svo í kjölfarið. Platan kemur út í mars og verður sjötta hljóðversplata sveitarinnar.Bob Dylanvísir/gettyVan Morrison - Ónefnd Norður-Írinn, sem verður sjötugur á árinu, hélt tónleika hérlendis í októbermánuði 2004 sem þóttu takast frábærlega. Flestir gagnrýnendur gáfu þeim fullt hús stjarna. Platan í ár verður sú 35. í röðinni en fengist hefur staðfest að hennar sé að vænta fyrrihluta ársins. Bob Dylan - Shadows in the NightTónlistarferill Bobs Dylan spannar tæplega sextíu ár og verður platan í ár sú 36. í röðinni. Á henni mun hann leika lög sem aðrir tónlistarmenn gerðu fræg, meðal annars lagið Full Moon and Empty Arms sem Frank Sinatra gerði frægt. Dylan hélt eftirminnilega tónleika í Laugardalshöll árið 1990 og aðra árið 2008. Sjá einnig: Bubbi reddaði Bob Dylan hassiDuran Duran og Nile Rodgers í hljóðveri.mynd/duran duranBeach House - ÓnefndDúettinn frá Maryland í Bandaríkjunum lék hér á landi á Iceland Airwaves-hátíðinni árið 2011. Ári síðar kom platan Bloom út sem var af mörgum talin besta plata ársins. Talsverð leynd hvílir yfir fimmtu plötu sveitarinnar en upptökur á plötunni hafa staðið yfir síðan síðla árs í fyrra. Duran Duran - Ónefnd Fjórtánda breiðskífa Duran Duran kemur út á árinu. Platan hefur enn ekki hlotið nafn eða útgáfudagur verið gefinn upp. Simon Le Bon og félagar hafa að undanförnu unnið að plötunni ásamt Nile Rodgers og Mark Ronson. 11.000 manns sáu Duran Duran spila í Egilshöll í lok júní 2005.Deafheaven leika á ATP í sumar.vísir/gettyDeafheaven - ÓnefndBlackmetal-sveitin var stofnuð árið 2010 og hefur gefið út tvær skífur. Sú síðari, Sunbather, hlaut nær einróma lof spekúlanta. Ný plata frá sveitinni er væntanleg um miðbik ársins. Formlega telst sveitin ekki enn Íslandsvinur en drengirnir leika á All Tomorrow's Parties sem fram fer í sumar.of Montreal - Aureate Gloomof Montreal fagnar tuttugu ára starfsafmæli á næsta ári og þegar Aureate Gloom kemur út í mars verða plöturnar orðnar þrettán. Mannabreytingar í sveitinni eru tíðar og hleypur fjöldi meðlima í gegnum tíðina á tugum. Árið 2007 lék sveitin á Iceland Airwaves.Purity Ringvísir/gettyPurity Ring - Another EternityKanadíski rafdúettinn lék í Listasafninu á Iceland Airwaves árið 2012 skömmu eftir að frumburður sveitarinnar, Shrines, leit dagsins ljós. Another Eternity kemur út í byrjun mars og hafa tvö lög hennar, Begin Again og Push Pull, þegar komið út.The Prodigy - The Day Is My EnemyThe Prodigy er ein af þeim erlendu sveitum sem komið hafa hvað oftast til Íslands. Sveitin spilaði í Kaplakrika 1994, á útihátíðinni Uxa 1995 og í Laugardalshöll áður en öldin rann sitt skeið. Sjötta skífa sveitarinnar er á leiðinni en sex ár eru síðan Invaders Must Die kom út. Fyrsta lag plötunnar er komið út en það heitir Nasty.
ATP í Keflavík Tónlist Mest lesið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Lífið Fréttatía vikunnar: Kosningar, eldgos og meistarar Lífið „Tilfinningaþrungið að fá að fylgja myndinni í flík sem þessari“ Tíska og hönnun Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning The Lazarus Project: Varúð, veldur svefnleysi Gagnrýni Frambjóðendum gekk misvel í hraðaspurningum Lífið Ghost of Tsushima: Kominn út á PC og enn geggjaður Leikjavísir Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Lífið Fleiri fréttir „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ „Aldrei verið jafn stolt af mér“ Páll Óskar og Skrattar í fyrsta sinn á sama sviði „BOY BYE“ við þá röngu en „BOY HÆ“ við þann rétta Bauð pabba að syngja með sér um íslensku sumargaslýsinguna Bashar Murad kemur fram á endalokum LungA „Við ætlum bókstaflega að rífa þakið af húsinu“ Rífandi stemning og valdefldar tónlistarkonur Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks „Þægileg blanda af von og trega“ Kom fram sem stórstjarna „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn Sjá meira