Dýrkeypt innsláttarvilla: 124 ára fyrirtæki á hausinn og 250 misstu vinnuna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. janúar 2015 14:10 Ekki bætti úr skák að framkvæmdastjórinn Philip Davison-Sebry var erlendis í fríi þegar málið kom upp. Settu margir spurningamerki við það og töldu hann mögulega hafa flúið land.
Fyrirtækjaskrá breska ríkisins hefur verið dæmd til að greiða eigendum velsku verkfræðistofunnar Taylor & Sons tæplega níu milljónir punda í skaðabætur, jafnvirði 1,75 milljarða íslenskra króna, fyrir að hafa fyrir mistök úrskurðað fyrirtækið gjaldþrota. Málið var höfðað í nóvember en kveðinn var upp dómur í vikunni. Forsaga málsins er sú að árið 2009 var fyrirtækið fyrir mistök úrskurðað gjaldþrota. Mistökin lágu í þeirri staðreynd að fyrirtæki með svipað nafn en öðrum bransa, Taylor & Son, gekk illa í rekstri og á barmi gjaldþrots. Stafsetningavilla starfsmanns fyrirtækjaskrárinnar varð til þess að í þrjá daga var rangt fyrirtæki skráð gjaldþrota. Út spurðist að fyrirtækið, sem hefur starfað í 124 ár og var með rúmlega 250 manns í vinnu, væri gjaldþrota. Ekki bætti úr skák að framkvæmdastjórinn Philip Davison-Sebry var erlendis í fríi þegar málið kom upp. Settu margir spurningamerki við það og töldu hann mögulega hafa flúið land. Mistökin voru leiðrétt þremur dögum síðar en þá var skaðinn skeður. Fréttir af gjaldþroti fyrirtækisins höfðu farið sem eldur í sinu um internetið. Viðskiptavinir sögðu upp samningum og á augabragði var rekstrargrundvöllur fyrirtækisins að engu orðinn. Taylor og Sons fóru því í mál til að leita réttar síns. Dómurinn féllst á að mistökin hefðu orðið til þess að kippa fótunum undan rekstri fyrirtækisins. Í dómsorði segir að mistökin hafi orðið til þess að gera að engu yfir hundrað ára gamalt fyrirtæki með góðan rekstur. Hefur fyrirtækinu nú verið dæmdar 1,75 milljarður króna í skaðabætur.Frétt Guardian um málið má sjá hér.
Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Þyrla forsetans sögð fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Sjá meira