Umfjöllun: Keflavík - Snæfell 75-67 | Góður sigur Keflvíkinga Styrmir Gauti Fjeldsted skrifar 12. desember 2015 19:45 Keflvíkingar unnu góðan sigur á Íslandsmeisturunum. Vísir/Stefán
Keflavík vann góðan sigur, 75-67, á Snæfelli í Domino's deild kvenna í körfubolta í dag. Leikar byrjuðu mjög jafnir í kvöld og ljóst var strax í upphafi að Keflvíkingar ætluðu að veita gestunum frá Stykkishólmi alvöru keppni. Bæði lið voru að hitta fremur illa í byrjun leiks en staðan eftir fyrsta leikhluta var 15-15 þar sem vörn Keflavíkinga var búin að vera einkar góð þó það hafi gengið illa hjá þeim að stíga út. Sóknarleikur gestanna fór mestmegnis í gegnum Bandaríkjamann þeirra, hana Haiden Palmer, en heimastúlkur voru greinilega búnar að fara vel yfir leik hennar og náðu þær að þröngva hana í erfið skot trekk í trekk. Þegar annar leikhluti var hálfnaður var staðan 23-25 gestunum í vil. Þá kom smá rispa hjá Snæfell þar sem þær náðu mest sjö stiga forskoti en Snæfellingar leiddu með þrem stigum í hálfleik 34-37. Það var í raun ótrúlegt að munurinn var ekki meir í ljós þessi að Snæfell tók hvorki meira né minna en 18 sóknarfráköst í fyrri hálfleik. Til samanburðar tók Keflavík í heildina 18 fráköst í öllum fyrri hálfleik. En vörn Keflvíkinga var til fyrirmyndar þrátt fyrir frákastayfirburði gestanna. Að sama skapi var skotavalið hjá Snæfell alls ekki gott og Haiden Palmer tók oft á tíðum erfið skot. Í hálfleik voru atkvæðamestar í liði Keflavíkur þær Melissa Zorning með 10 stig, 4 fráköst og Guðlaug Björt Júlíusdóttir 6 stig auk þess að spila stórgóða vörn á Palmer. Í liði Snæfells var Palmer með 15 stig og 8 fráköst. Á eftir henni kom Bryndís Guðmundsdóttir með 10 stig og 8 fráköst. Áfram var mikið jafnræði á leiknum í þriðja leikhluta. Heimastúlkur voru gera miklu betri hluti í frákastabaráttunni en Margrét Sturlaugsdóttir, þjálfari Keflavíkur, hefur eflaust lagt mikla áherslu á það í hálfleiksræðu sinni. Að loknum þriðja leikhluta var staðan 52-53 þar sem ómögulegt var að segja til um hvort liðið myndi fara með sigur af hólmi. Keflvíkingar byrjuðu seinasta leikhlutan af miklum krafti og baráttan þeirra var algjörlega til fyrirmyndar. Þær náðu fljótlega forustunni og héldu henni allan leikinn. Melissa Zorning var gríðarlega mikilvæg á lokasprettinum og skoraði hún níu stig á seinustu þrem mínútum leiksins. Snæfellsstúlkur reyndu hvað þær gátu til að snúa leiknum sér í vil en hittni þeirra í kvöld var ekki merkileg og náðu þær aldrei að ógna Keflvíkingum á lokasprettinum. Að lokum unnu Keflvíkingar glæsilegan sigur á Snæfelli, 75-67, sem þýðir að Haukar sitja einar á toppnum í deildinni en þær unnu Grindavík í kvöld. Keflavík er nú komið í jólafrí og sitja 4.sæti en sigurinn í kvöld ætti að gefa þeim aukið sjálfstraust fyrir komandi átök. Snæfell tapaði í kvöld toppsætinu og eiga þær næst erfiðan útileik gegn Grindavík áður en þær fara í jólafrí. Zorning var atkvæðamest í liði Keflavíkur en hún skoraði 30 stig og tók átta fráköst en hún var sérstaklega góð á lokasprettinum. Á eftir henni kom fyrirliði Keflavíkur, Sandra Lind Þrastardóttir, með 12 stig og sjö fráköst. Í liði gestanna var Palmer með 20 stig og 13 fráköst en hún tapaði einnig sex boltum og hitti einungis úr 9/33 skotum sínum í kvöld. Á eftir henni kom Bryndís með 18 stig og 14 fráköst á sínum gamla heimavelli.Tölfræði leiks: Keflavík-Snæfell 75-67 (15-15, 19-22, 18-16, 23-14) Keflavík: Melissa Zornig 30/8 fráköst, Sandra Lind Þrastardóttir 12/7 fráköst, Marín Laufey Davíðsdóttir 10/5 fráköst, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 10, Bríet Sif Hinriksdóttir 6, Thelma Dís Ágústsdóttir 5, Elfa Falsdottir 2/4 fráköst, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 0, Irena Sól Jónsdóttir 0, Þóranna Kika Hodge-Carr 0, Katla Rún Garðarsdóttir 0, Andrea Einarsdóttir 0. Snæfell: Haiden Denise Palmer 20/13 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 18/14 fráköst, María Björnsdóttir 13, Berglind Gunnarsdóttir 6, Andrea Björt Ólafsdóttir 5/7 fráköst, Anna Soffía Lárusdóttir 3, Rebekka Rán Karlsdóttir 2, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 0/4 fráköst, Sara Diljá Sigurðardóttir 0/4 fráköst, Hrafnhildur Magnúsdóttir 0.Bein lýsing: Keflavík - SnæfellTweets by @Visirkarfa3
Dominos-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Sjá meira