Línudansdrottningin hans Emmsjé Gauta Guðrún Ansnes skrifar 1. desember 2015 07:00 Þau Gauti og Ingunn eiga línudansinn sameiginlegan, það er, meðan hún dansar eftir kúnstarinnar reglum þá stígur Gauti hann í daglegu lífi og eftir eigin höfði. Vísir/Vilhelm
Maður lætur hafa sig út í allt mögulegt, og þetta ætlar að gera heilmikla lukku,“ segir Ingunn Hlín Björgvinsdóttir, dansstjarna sem slegið hefur rækilega í gegn í nýjasta myndbandi Emmsjé Gauta, sem ber nafnið Ómar Ragnarsson. „En þetta var nú bara allt í lagi, þeir hringdu og ég gerði þetta,“útskýrir hún. Dansar Ingunn línudans af miklum móð í myndbandinu en viðurkennir þó fúslega að hafa ekki haft hugmynd um hvernig hún hafi ætlað að dansa í tjéðu myndbandi. „Ég dansaði bara það sem mér datt í hug, heyrði taktinn og þá kom þetta allt saman til mín,“ útskýrir Ingunn og bætir glottandi við: „Þetta fer allt eftir músíkinni, maður dansar nú alveg hraðar þetta.“ Ingunn er svo sem enginn aukvisi þegar kemur að því að sýna dans í myndböndum. „Ég hef nú dansað með Geirmundi Valtýssyni í sjónvarpinu einu sinni, nema þá vorum við reyndar fjórar. Svo hef ég dansað með Helga Björns líka.“ Sjálf hefur Ingunn ekki verið mikið í að dansa við rapptónlist,og sagðist ekkert hafa þekkt þennan Emmsjé Gauta þegar verkefnið datt inn á borð til hennar. „Ég þekki hann ekki nokkurn skapaðan hlut. Þeir hringdu á stöðvarnar og var bara endalaust bent á mig,“ útskýrir Ingunn og bætir við: „Svona lætur áttatíu og fjögurra ára kerlingin,“ og hlær eins og hún eigi lífið að leysa. Ingunn hefur dansað síðan hún var ung, og fór mikinn í samkvæmisdönsum. „ Ég dansaði alltaf við bróður minn, en svo hætti hann. Þá fór ég beint á línuna, þar þarf engan herra,“ segir hún, alsæl með sitt sport en hún hefur dansað línudans í um tuttugu ár núna, og kennir hann að auki. Eins og það sé ekki nóg segir Ingunn frá því að dansinn umlyki hana úr öllum áttum, en á dögunum hafi sjö ára barnabarn hennar orðið Íslandsmeistari í gömlu dönsunum og árið 2003 hafi dóttir hennar orðið heimsmeistari í samkvæmisdönsum, svo sennilega sé þetta allt saman í blóðinu. Aðspurð um hvort hún ætli sér að hasla sér frekari völl innan rappsenunnar svara okkar kona því til að hún viti ekkert um það, en það megi vissulega skoða allt. Kláraði þetta á fjörutíu mínútum„Ingunn er svona undrakona, þetta tók okkur í mesta lagi fjörutíu mínútur, eða tvö rennsli, sem er frekar óvenjulegt,“ segir Gauti Þeyr, eða Emmsjé Gauti. „Hugmyndin er komin frá Frey Árnasyni og mér leist auðvitað vel á þetta bara.“ Gauti er að vonum himinlifandi með myndbandið, sem sker sig sannarlega úr dobíu rappmyndbanda, þar sem býsna sjaldgæft er að konum á níræðisaldri sé gert hátt undir höfði, en á aðeins tveimur sólarhringum hlaut myndbandið tólf þúsund spilanir. „Ég væri helst til í að fá hana bara með mér að túra,“ svarar Gauti þegar hann er inntur eftir því hvort hann ætli sér að fá Ingunni í fleiri verkefni, en augljós tenging er á milli línudansins og rappsins fyrir þá sem nú þegar hafa ekki komið auga á hana. „Ég hef alltaf dansað mikið á línunni, svo ég tengi þannig mikið við línudansinn,“ útskýrir hann að lokum og skellir upp úr.
Tónlist Tengdar fréttir Nýtt myndband Emmsjé Gauta: "Samansafn síðustu fjögurra ára hjá mér“ MC Gauti tók til í tölvunni sinni og úr varð nýtt myndband. 22. mars 2015 20:05 Nýtt myndband frá Emmsjé Gauta um bullandi vináttu „Strákarnir er eitt af þessum lögum sem kom um leið og ég heyrði taktinn. Auðunn Lútherson sendi á mig demo af honum og ég varð samstundis ástfanginn,“ segir rapparinn Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti. 14. ágúst 2015 12:00 Frumsýning: Nýtt myndband með Emmsjé Gauta 9. október 2014 12:42 Mest lesið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið „Ég fæ það bara strax og ég set hann inn“ Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara strax og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira
Nýtt myndband Emmsjé Gauta: "Samansafn síðustu fjögurra ára hjá mér“ MC Gauti tók til í tölvunni sinni og úr varð nýtt myndband. 22. mars 2015 20:05
Nýtt myndband frá Emmsjé Gauta um bullandi vináttu „Strákarnir er eitt af þessum lögum sem kom um leið og ég heyrði taktinn. Auðunn Lútherson sendi á mig demo af honum og ég varð samstundis ástfanginn,“ segir rapparinn Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti. 14. ágúst 2015 12:00