Formúla 1

Renault vill ekki klára tímabilið án þess að vinna keppni

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Remi Taffin ræði við Helmut Marko, ráðgjafa Red Bull.
Remi Taffin ræði við Helmut Marko, ráðgjafa Red Bull. Vísir/Getty
Remi Taffin, framkvæmdastjóri vélamála hjá Renault segir að það verði vont að enda tímabilið án þess að vinna keppni. Aðeins ein keppni er eftir á tímabilinu.

Vélaframleiðandinn sem sér Red Bull og systurliðinu Toro Rosso, hefur tvisvar náð öðru sæti í ár og einu sinni því þriðja. Fyrsta sætið er þó afar ólíklegt á meðan Mercedes og Ferrari liðin eru svona mikið öflugri.

Það eru komin átta ár síðan Renault náði ekki að vinna keppni á tímabili í Formúlu 1. Renault vill ekki endurtaka það en það lítur allt út fyrir það. Nema eitthvað ótrúlegt gerist um helgina í Abú Dabí.

„Samkvæmt okkar mælikvarða hefur þetta ekki verið eins gott tímabil og við hefðum vonað og það verður vont fyrir okkur að enda tímabilið án þess að vinna keppni,“ sagði Taffin.

Þrátt fyrir erfitt tímabil í ár hefur Taffin trú á því að framfarir sem Renault hefur séð í ár muni skína í gegn á næsta ári.

„Við höfum lært margt og það eru ennþá stór skref að taka, við munum hagnast á því í framtíðinni. Eftir erfiða byrjun á tímabilinu höum við náð ágætis áreiðnaleika og hver einasti hlutur hjá okkur er betri en hann var í fyrra,“ bætti Taffin við.

„Hvað aflið varðar erum við nær keppinautum okkar og við vitum að sumstaðar getum við reynt við verðlaunapall. Auðvitað viljum við vera í stöðugri baráttu um að vinna, það er næsta skref í bataferlinu. Við höfum lært margt í ár sem mun færa okkur nær því markmiði,“ sagði Taffin að lokum.


Tengdar fréttir

Ferrari býður Red Bull líflínu

Ferrari hefur nú boðið Red Bull aftur að samningaborðinu. Red Bull hefur enn ekki orðið sér út um vél fyrir næsta ár en líkurnar eru nú með liðinu.

Bílskúrinn: Blönduð keppni í Brasilíu

Keppnin í Brasilíu um síðustu helgi var með þeim rólegri, einungis einn ökumaður komst ekki í endamark, Carlos Sainz á Toro Rosso kláraði ekki fyrsta hringinn. Margt athyglisvert kom þó fram um helgina uppgjör þess helsta er í Bílskúrnum, hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×