Hafa hagnast um 244 milljónir á dag Ingvar Haraldsson skrifar 13. nóvember 2015 07:00 Hagnaður Arion banka var mestur á fyrstu níu mánuðum ársins eða 93,4 milljónir króna á dag að jafnaði. vísir/pjetur
Viðskiptabankarnir þrír, Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn, högnuðust samanlagt um 66,5 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins, eða sem samsvarar 244 milljónum króna á dag. Mestur var hagnaður Arion banka eða 25,4 milljarðar króna, eða um 93 milljónir króna á dag að jafnaði. Hagnaður Arion banka líkt og hinna bankanna litast að stórum hluta af svokölluðum einskiptisliðum. Í tilfelli Arion banka var um helmingur af hagnaði bankans kominn til vegna sölu eigna sem félagið eignaðist í skuldauppgjöri í kjölfar hrunsins. Það sem af er ári hefur bankinn selt stóra eignarhluti í Reitum, drykkjarframleiðandanum Refresco Gerber og Símanum. Landsbankinn hagnaðist um 24,4 milljarða króna á tímabilinu eða um 89,3 milljónir króna á dag. 6,8 milljarðar af hagnaðinum skýrðust af bakfærslu á varúðarfærslu vegna gengislána til fyrirtækja. Minnstur var hagnaður Íslandsbanka sem nam 16,7 milljörðum króna það sem af er ári eða 61,1 milljón króna á dag. Þar var hlutfall einskiptisliða af hagnaði einnig lægst. Búist er við að hagnaður vegna einskiptisliða muni dragast saman á næstunni. Bankarnir hafi selt stærstan hluta þeirra eigna sem féllu þeim í skaut í hruninu og búið sé að bókfæra megnið af virðishækkun lána. Því muni bankarnir þurfa að treysta á grunnrekstur sinn. Uppgefin arðsemi af grunnrekstri allra bankanna eykst milli ára.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira