Landsbankinn hagnast um 12 milljarða ingvar haraldsson skrifar 5. nóvember 2015 16:32 Rekstur Landsbankans gengur betur í ár en í fyrra að sögn bankastjórans. Vísir/Andri Marinó
Landsbankinn hagnaðist um 12 milljarða króna á þriggja mánaða tímabilinu frá byrjun júlí til loka september. Hagnaðar bankans á fyrstu mánuðum níu mánuðum ársins er því 24,4 milljarðar króna. Hagnaðurinn nú er að stórum hluta sagður skýrast af bakfærslu varúðarfærslu vegna gengislána til fyrirtækja. Eigið fé Landsbankans, sem er í eigu ríkisins, er nú orðið 252,5 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall er 29,2 prósent. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir í tilkynningu að afkoma Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins sé góð og betri en á sama tíma í fyrra. „Arðsemi eiginfjár eftir skatta er 13,5% og fjárhagslegur styrkur bankans er mikill. Á 3. ársfjórðungi munar mikið um áhrif af dómum Hæstaréttar í málum nr. 34/2015 og 35/2015 sem vörðuðu ágreining um gengislán til stærri fyrirtækja. Vegna fordæmisgildis dómanna bakfærir bankinn varúðarfærslu frá 2012 sem hefur jákvæð afkomuáhrif upp á 6,8 milljarða króna, eftir skatta,“ segir Steinþór. Þá telur bankastjórinn að rekstur bankans muni halda áfram að batna. „Fjármögnun bankans hefur styrkst verulega undanfarið með útgáfu skuldabréfa á erlendum fjármálamarkaði. Þá hafa innlán og útlán aukist töluvert.“ Hins vegar bendir Steinþór á að búast megi við að nokkuð hægi á útlánsvexti á næstu mánuðum og að innlán minnki í kjölfar samþykkis nauðasamninga slitabúanna og skrefa í afnámi fjármagnshafta. „Vegna þessa má búast við að efnahagsreikningur Landsbankans minnki um allt að 10%. Bankinn leggur mikla áherslu á sterka lausafjárstöðu og er því vel undirbúinn fyrir þessar breytingar,“ segir hann.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira