Innlent

Katrín Jakobsdóttir: „Brauðmolakenningin eini pólitíski flóttamaðurinn sem ríkisstjórnin vill taka á móti“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Katrín Jakobsdóttir í ræðupúlti á landsfundi VG.
Katrín Jakobsdóttir í ræðupúlti á landsfundi VG. Skjáskot
Katrín Jakobsdóttir hélt formannsræðu sína fyrir stundu á landsfundi Vinstri hreyfingarinnar - Græns framboðs sem hófst á Selfossi í dag. Í ræðu sinni fór hún yfir víðan völl en gagnrýni á sitjandi ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokkinn var fyrirferðarmikil.

Fylgjast má með landsfundi VG í beinni útsendingu á Vísi.

Sporin hræða

Katrín kallaði eftir því að gagnsæi yrði haft að leiðarljósi þegar stórar ákvarðanir væru teknar í íslensku sjónarmiði og tengdi hún það við afnám gjaldeyrishafta sem hafa verið í deiglunni undanfarnar vikur og mánuði hér á landi. Spurði Katrín sig og fundargesti hvort að nauðasamningaleiðin við kröfuhafa hina föllnu banka væri til þess fallin að auka gagnsæi.

„Eru þessu viðmið fyrir stöðugleikaframlögin of lág til að upppfylla þau markmið að losun gjaldeyrishafta raski ekki högum almennings? Er verið að gefa of mikinn afslátt?“

Hvatti hún jafnframt stjórnvöld til þess að hrista upp í bankakerfinu og að einn banki yrði rekin með umhverfis- og samfélagssjónarmið að leiðarljósi, yrði niðurstaðan á þá leið að stórir hlutar hinna íslensku banka myndu enda í eigu ríkisins en fyrir liggur að Íslandsbanki muni enda í höndum ríkisins. Katrín efaðist þó um að ríkisstjórnin myndi fara þessa leið.

„Hættan er sú að núverandi stjórnvöld muni ekki feta þá leið. Saga stjórnarflokkana í einkavæðingu banka er harmleikur sen ég leyfi mér að segja að mjög fáir vilji endurtaka. Sporin hræða.“

Brauðmolakenningin í öndunarvél

Ríkisstjórnin fékk annan skammt af gagnrýni frá Katrínu og sagði hún að þrátt fyrir ágætt efnahagssástand hér á landi sem þakka mætti bæði núverandi og síðustu ríkisstjórn væri ljóst að sitjandi ríkisstjórn forgangsraðaði í þágu hinna ríku í íslensku samfélagi. Sagði Katrín að að ríkisstjórnin nýtti sér brauðmolakenninguna svokölluðu sem afsökun fyrir því.

„Það gerði hún með því að afnema auðlegarskatt, afnema orkuskatt, lækka skatta á alla nema hina tekjulægstu og svo taka forkálfar ríkistjórnarinnar upp orðaleppa Repúblikanaflokksins bandaríska um að hinir tekjulágu borgi nú alls engan skatt,“ sagði Katrín áður en hún ræddi um brauðmolakenninga sem hún sagði vera í öndunarvél, úrskurðuð látin af OECD. „En ríkisstjórn Íslands tók á móti henni, líklega eina pólitíska flóttamanninum sem hún vill hleypa inn í landið.“

Ísland verði kolefnishlutlaust land

Í lokin vék Katrín að umhverfisvernd og vitnaði hún í ræðu Francois Hollande Frakklandsforseta á Arctic Circle-ráðstefnunni sem fram fór um síðustu helgi. Sagði Katrín að það væri ótækt að að einhverjir gætu grætt á á loftlagsbreytingum eða nýjum siglingarleiðum í kjölfar bráðnunar íss á Norðurslóðum, „við eigum ekki að græða á því sem veldur eymd annarra, sem skaðar náttúruna.“

Að mati Katrínar gæti Íslands spilað mikilvægt hlutverk og sett sér framsækin markmið. Kallaði Katrín eftir því að Ísland yrði kolefnishlutlaust land. Olíuvinnsla ætti ekki að vera valkostur og áð Ísland ætti að rafvæðast af fullu, sérstaklega með því að rafvæða samgönguflotann á Íslandi

„Okkar markmið á ekki að snúast um að móta okkur endurnýjanlega orku til að knýja fleiri iðjuver heldur einmitt um orkuskipti, breytingar sem geta skipt máli fyrir heiminn þó að um litla þjóð sé að ræða.“

Ekki leiðinlegt í pólitíkinni

Katrín vék ekki að því í ræðu sinni hvort að hún myndi sækjast eftir kjöri til embættis Forseta Íslands eins og rætt og ritað hefur verið um en hún gat þess þó að henni þætti pólitíkin skemmtileg, þrátt fyrir ítrekaðar spurningar um hvort væri ekki leiðinlegt í pólitíkinni.

„Pólitískt starf skiptir máli því við viljum flest bæta samfélagið þannig að það verði réttlátt samfélag fyrir alla, gott samfélag fyrir alla. Og það hlýtur þegar öllu er á botninn hvolft að fela einnig í sér skemmtilegheit.“

Fylgjast má með landsfundi VG í beinni útsendingu á Vísi um helgina.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×