Óvíst að takist að klára um helgina Óli Kristján Ármannsson og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 24. október 2015 00:01 Snorri Magnússon, formaður Landsambands lögreglumanna, var vígalegur með gjallarhornið. visir/gva
Mörg erfið mál eru enn óleyst í kjaraviðræðum SFR, Sjúkraliðafélagsins og lögreglumanna við samninganefnd ríkisins þótt nokkur skriður hafi verið á viðræðum, að sögn Árna Stefáns Jónssonar, formanns SFR. Í viðtali við fréttastofu sagði Árni Stefán óvíst að nýir kjarasamningar verði undirritaðir um helgina, þótt samkomulagi sé náð um grundvallaratriði og kostnaðarramma í nýjum samningum. Þung sérmál séu eftir, svo sem varðandi vaktavinnu og fleiri þætti. „Þetta hefur gengið upp og ofan síðustu daga,“ segir hann. Í fyrradag hafi viðræður gengið fremur hægt framan af degi en svo tekið við sér seinni partinn og í gær hafi verið samstaða um að hafa „góðan skrið“ á viðræðunum. „En hvort þeir klárast núna um helgina er erfitt um að segja.“ Fundað hefur verið daglega frá því að verkfallsaðgerðir SLFÍ og SRF hófust fyrir rúmri viku. Lögreglumenn hafa ekki verkfallsrétt en hafa tekið þátt í mótmælum og samstöðufundum verkalýðsfélaganna þriggja sem saman standa að viðræðunum við ríkið. Félögin eru stærstu aðildarfélög BSRB og má gera ráð fyrir því að samningur þeirra verði sá grunnur sem samningar annarra félaga við ríkið komi til með að byggja á. Félagar í stéttarfélögunum komu saman við Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu í Reykjavík í gærmorgun í þeirri trú að þar færi fram ríkisstjórnarfundur eins og venja er á föstudögum. Honum hafði hins vegar verið frestað vegna landsfundar Sjálfstæðisflokksins sem hófst í gær. Af þeim sökum var boðað til annarra mótmæla við Laugardalshöll síðdegis á meðan Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, flutti þar innandyra opnunarræðu landsfundarins.
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Erlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Fleiri fréttir Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Sjá meira