Magnús Ver fær 600 þúsund krónur í bætur vegna hlerana Birgir Olgeirsson skrifar 16. október 2015 14:00 Magnús Ver Magnússon. Vísir/Vilhelm
Magnúsi Ver Magnússyni, fyrrverandi sterkasta manns heims, hafa verið dæmdar 600 þúsund krónur í bætur frá ríkinu vegna ólögmætar meingerðar í hans garð. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp þennan dóm rétt í þessu. Málskostnaður fellur niður. Magnús Ver fór fram á tíu milljónir króna í miskabætur frá ríkinu auk dráttarvaxta og málskostnaðar. Ríkið fór hins vegar fram á verulega lækkaðar dómkröfur og að málskostnaður verði felldur niður, en krafðist ekki sýknu. Magnús sagði í samtali við Vísi eftir að dómur var uppkveðinn að dómurinn væri að hluta til vonbrigði fyrir sig. Hann teldi hann léttvægan því hann hafði vonast til þess að hann myndi hafa fordæmisgildi.Sjá einnig: Magnús Ver um símhleranir: Mér varð verulega brugðiðUpphaf málsins má rekja til símtals sem Magnús Ver fékk frá lögreglunni þann 21. ágúst í fyrra. Í því símtali tilkynnti lögreglumaður Magnúsi Ver að lögreglan hefði beitt ýmsum rannsóknarúrræðum í rannsókn sem beindist að honum á sínum tíma, þar með talið að hlera síma hans, nota eftirfararbúnað í bifreið hans sem og að setja hlustunarbúnað í bifreið í umráðum Magnúsar.Sjá einnig: Magnús Ver vill 10 milljónir í bætur frá íslenska ríkinu Magnús byggði bótakröfu sína á því að hafa verið rannsakaður af lögreglu í nærri þrjú ár en 1. október árið 2014 var lögmanni Magnúsar tilkynnt um að rannsókn málsins, þar sem Magnús hafði réttarstöðu grunaðs manns, væri lokið. Var Magnús grunaður um stórfellt fíkniefnasmygl en sá grunur reyndist ekki á rökum reistur og var rannsókn málsins hætt.
Tengdar fréttir Þung byrði á fyrrverandi sterkasta manni heims "Við vissum það alveg frá byrjun að við værum með unnið mál. Spurningin var bara hversu mikils virði eru mannréttindi og friðhelgi einkalífs einstaklings,“ segir fyrrverandi aflraunamaðurinn Magnús Ver Magnússon. 5. október 2015 09:00 Mest lesið Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Stúlkan er fundin Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent Fleiri fréttir Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Sjá meira
Þung byrði á fyrrverandi sterkasta manni heims "Við vissum það alveg frá byrjun að við værum með unnið mál. Spurningin var bara hversu mikils virði eru mannréttindi og friðhelgi einkalífs einstaklings,“ segir fyrrverandi aflraunamaðurinn Magnús Ver Magnússon. 5. október 2015 09:00