Tíu marka tap í Frakklandi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. október 2015 18:20 Rut skoraði þrjú mörk í leiknum í dag. vísir/ernir
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta hóf undankeppni EM 2016 á 10 marka tapi, 27-17, fyrir Frakklandi í Antibes í dag. Ísland byrjaði leikinn vel og hélt í við Frakka lengst af í fyrri hálfleik sökum góðs varnarleiks. Íslenska vörnin var gríðarsterk í upphafi leiks og Frakkar töpuðu fjölmörgum boltum í sókninni. Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir kom Íslandi í 4-5 með sínu fyrsta og eina marki í leiknum en þá kom góður kafli hjá heimakonum sem skoruðu fjögur mörk í röð og náði þriggja marka forskoti, 8-5. Sami munur var svo á liðunum í hálfleik, 11-8. Í seinni hálfleik hafði franska liðið öll völd á vellinum og jók jafnt og þétt við forskotið. Íslenska liðið tapaði alltof mörgum boltum í sókninni og vörnin, sem var svo sterk í fyrri hálfleik, fór að bila. Þá var markvarslan sama og engin. Frakkar skoruðu hvert markið á fætur öðru unnu að lokum 10 marka sigur, 27-17. Íslenska liðið fær ekki marga daga til að sleikja sárin því á sunnudaginn mætir Ísland Þýskalandi í öðrum leik sínum í undankeppninni. Leikurinn fer fram í Vodafone-höllinni og hefst klukkan 16:00.Mörk Íslands: Rut Jónsdóttir 3, Arna Sif Pálsdóttir 3, Karen Knútsdóttir 3/3, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2, Steinunn Hansdóttir 1, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 1, Ramune Pekarskyte 1, Hildur Þorgeirsdóttir 1, Ásta Birna Gunnarsdóttir 1, Helena Rut Örvarsdóttir 1.
Handbolti Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira