Árni Þór verður ekki með Hamarsstelpurnar í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. september 2015 16:00 Árni Þór Hilmarsson og Lárus Ingi Friðfinnsson formaður Hamars. Mynd/Heimasíða Hamars
Árni Þór Hilmarsson verður ekki þjálfari kvennaliðs Hamars í Dominos-deild kvenna í körfubolta í vetur eins og stefnan var en það kemur fram að heimasíðu félagsins að Árni Þór hafi látið af störfum af persónulegum ástæðum. Árni Þór tók við liði Hamars í sumar af Hallgrími Brynjólfssyni en Árni hefur unnið frábært starf á Flúðum og meðal annars skilað mörgum körfuboltastelpum í Hrunamönnum í yngri landslið Íslands. Daði Steinn Arnarsson hefur tekið við liðinu af Árna Þór og mun því stýra Hamar í Dominos-deild kvenna í vetur. „Hrunamaðurinn Árni Þór Hilmarsson hefur látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna af persónulegum ástæðum. Árni tók við liðinu í vor af Hallgrími Brynjólfssyni. Stjórn körfuknattleiksdeildar þakkar Árna fyrir vel unnin störf þann stutta tíma sem hann var hjá félaginu og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni. Við liðinu tekur Daði Steinn Arnarsson sem er öllum vel kunnugur og býður stjórnin Daða velkominn til starfa,“ segir í fréttinni á hamarsport.is Hamarsliðið endaði í 6. sæti af átta liðum í Dominos-deild kvenna síðasta vetur en liðið hafði styrkt sig í sumar og þar á meðal með nokkrum leikmönnum sem Árni Þór þekkir vel frá Flúðum. Hamar hefur hafið keppni í Fyrirtækjabikarnum og tapaði á móti Skallagrími í Borgarnesi í sínum fyrsta leik. Næsti leikur og sá fyrsti undir stjórn Daða er heimaleikur á móti Keflavík á fimmtudaginn.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Sjá meira