Hvernig Baltasar Kormákur er LeBron James Íslands - og öfugt Kjartan Atli Kjartansson skrifar 26. september 2015 08:30 Baltasar Kormákur og LeBron James eru í sínu besta formi um þessar mundir.
Já, líklega hljómar það skringilega í fyrstu að bera saman leikstjórann Baltasar Kormák, sem verður fimmtugur á næsta ári, og þrítugu NBA-stjörnuna LeBron James. En við frumsýningu á kvikmyndinni Evrest rann það upp fyrir blaðamanni, að þessir tveir menn virðast vera með ákaflega líkt gildismat og líkir í hugsun. Í ræðu á frumsýningunni kallaði Baltasar alla þá Íslendinga sem unnu að myndinni upp til sín, svo áhorfendur gerðu sér grein fyrir því hversu íslensk Evrest er. Í myndinni leikur Ingvar E. Sigurðsson, vinur Baltasars til margra ára, einnig stórt hlutverk. LeBron James hefur einnig haldið tryggð við æskuvinina og gert sitt til þess að útvega þeim störf í umboðsmennsku og fleiru. James átti um tíma í töluvert stirðara sambandi við heimasvæði sitt en Baltasar. James yfirgaf heimaliðið í Cleveland Cavaliers og fór stórlið Miami Heat; fór í glamúrinn. En nú er hann kominn aftur heim – og virðist hafa sama markmið og Baltasar; að efla nærumhverfi sitt og hafa jákvæð áhrif á heimabæinn.Allir frá Kópavogi „Einhvern tímann var ég í Óskarspartýi. Það voru allir frægir og ég sat þarna og var nýi leikstjórinn og hugsaði: Ég er bara frá Kópavogi, hvað er ég að gera hérna? Og þá uppgötvaði ég að það eru allir frá Kópavogi. Það eru allir frá einhverjum stað, flestir frá litlum stað. Og öllum líður eins, það eru allir frá vesturbæ Kópavogs.“ Þessi orð lét Baltasar Kormákur falla í föstudagsviðtali Fréttablaðsins fyrir stuttu. Þetta lýsir vel annars vegar nálgun Baltasars á stjörnulífið í Hollywood og tengslum hans við heimabæinn. LeBron James hefur látið svipuð orð falla. „Ég er bara strákur frá Akron,“ er þekkt tilvitnun í James. Liðsfélagi hans Dwyane Wade sagði frá því í samtali við fréttastofu Fox að James hafi sagt þetta þegar þeir voru að ræða um möguleika hans á að verða valinn besti leikmaður NBA í fjórða sinn. LeBron James hefur haldið tryggð við heimabæinn, þrátt fyrir að yfirgefa lið Cleveland tímabundið. Þegar hann kom aftur heim ritaði hann frægt bréf þar sem hann útskýrði að hans hlutverk væri að koma lífinu á svæðinu í kringum Cleveland, þar á meðal í heimabænum Akron, á hærra plan. Hann segist vilja gefa fólkinu í norðausturhluta Ohio von. „Fólkið þarna hefur séð mig vaxa úr grasi og finnst ég örugglega vera eins og sonur þess. Stundum líður mér eins og það sé rétt. Ástríða fólksins getur vissulega verið yfirþyrmandi, en hún drífur mig áfram. Ég vil gefa fólkinu von. Ég vil veita því innblástur. Samband mitt við norðaustur Ohio er meira en köfrubolti. Ég gerði mér ekki grein fyrir þessu fyrir fjórum árum. En nú geri ég það,“ skrifaði hann til aðdáenda Cleveland.Rich Paul og LeBron James eru góðir vinir.Vísir/GettyVinirnir með Það sem er líklega hvað líkast með LeBron James og Baltasar Kormáki er að þeir taka ekki árangri sínum sem sjálfsögðum hlut. Þeir virðast skynja velgengni sína sem hluta af stærra mengi og að þeir beri skyldu til þess að láta gott af sér leiða. Að hjálpa þeim sem eru í kringum þá til þess að njóta sömu velgengni, í þessum erfiða heimi íþrótta og kvikmynda. Í Bandaríkjunum er LeBron þekktur fyrir að hafa tekið vini sína með sér í þá rússíbanareið sem líf hans hefur verið. Heimildarmynd var gerð um vinahópinn, undir titlinum More than a Game. Hluti af þeim vinahópi vinnur enn fyrir LeBron, þar af er einn þeirra, Maverick Carter, í umboðsmannateymi LeBron. En sá vinur LeBron sem hefur líklega náð lengst er Rich Paul, sem er nú á góðri leið að verða einn heitasti umboðsmaður NBA-deildarinnar. Hann hefur nokkra unga og efnilega leikmenn á sínum snærum auk þess að vera í umboðsmannateyminu í kringum LeBron James. Þeir félagar kynntust á flugvellinum í Akron, þegar LeBron var 17 ára og Rich Paul 21 árs. James hreyfst á treyju sem Paul var í og byrjuðu þeir að spjalla. Tæpum fjórtán árum síðar eru þeir saman á toppinum.Ingvar E. Sigurðsson leikariEf einhver ætti að vera Rich Paul í lífi Baltasars hlýtur það að vera Ingvar E. Sigurðsson. Þeir voru saman í bekk í leiklistarskólanum og Baltasar hér má sjá Baltasar rifja upp samtal þeirra á milli. „Leikstjórinn kom svo ekki fyrr en ég byrjaði í leiklistarskólanum. Þegar ég útskrifaðist var ég að tala við Ingvar E. held ég. Við vorum saman í bekk. Við vorum að ræða framtíðina, kannski 24 ára gamlir. Ég sagði við hann, segjum sem svo að við fáum ógeðslega mikið að gera og við erum orðnir þrítugir, hvað þá?“ Ingvar leikur stórt hlutverk í Everest og hefur áður unnið með Baltasar, meðal annars í Mýrinni, þar sem hann var í aðalhlutverki. Þó má ekki skilja það sem svo að Ingvar hafi ekki notið velgengni án aðstoðar Baltasars, Ingvar hefur skapað sinn eigin feril á glæstan hátt. Baltasar virðist einnig líta á það sem hálfgerða skyldu sína að efla íslenska kvikmyndagerð. Hann á auðvitað framleiðslufyrirtæki hér á landi og hefur verið duglegur að vinna með íslensku kvikmyndagerðarfólki, eins og sjá má í Everest. „Mig langar að geta gert þetta hér, en vera með úti. Ég finn mig í svona verkefni eins og Everest. Þar á ég heima.“LeBron James LeBron James er af mörgum talinn besti körfuknattleiksmaður heims. LeBron kemur frá smábænum Akron í norðausturhluta Ohio-fylkis í Bandaríkjunum. LeBron hefur fjórum sinnum verið valinn besti leikmaður NBA-deildarinnar, tvisvar sinnum orðið meistari og fimm sinum komið liði sínu í úrslitaeinvígið í NBA. Það var ótrúleg lukka, ef svo má að orði komast, að Celveland Cavaliers hafi átt fyrsta valréttinn í nýliðavali NBA árið sem LeBron James lauk framhaldsskóla og tilkynnti að hann vildi inn í NBA. Íþróttalið í Celveland hafa verið einstaklega óheppin í gegnum tíðina og hefur lið Cavaliers aldrei orðið meistari. Aðdáendur liðsins litu á LeBron sem einskonar bjargvætt og kyndilbera nýrra tíma. Því urðu margir brjálaðir þegar hann yfirgaf liðið og fór til Miami Heat. Þar var hann í fjögur ár, komst í úrslit öll árin og vann tvo titla. Fyrir um ári síðan tilkynnti hann svo, öllum að óvörum, að hann ætlaði aftur heim til Cleveland og komst liðið í úrslit síðasta vor, þar sem LeBron spilaði nánast óaðfinnanlega.Baltasar Kormákur Baltasar Kormákur hefur farið með íslenska kvikmyndagerð þangað sem hún hefur aldrei áður farið.Baltasar ólst upp í Kópavogi og útskrifaðist úr leiklistarskólanum 1990. Hann starfaði sem leikari til ársins 1997, auk þess sem hann setti upp verk. Frá árinu 2000 hefur hann leikstýrt ellefu stórum kvikmyndum.Baltasar hefur leikstýrt nokkrum stórmyndum, nú síðast Everest. Hann hefur unnið með leikurum á borð við Denzel Washington, Mark Wahlberg og Jake Gyllenhal. Í kjölfarið á velgengni kvikmyndarinnar 101 Reykjavík, sem Baltasar var handritshöfundur af og leikstýrði, komst hann á lista hins stóra tímarits Variety yfir tíu leikstjóra sem lesendur ættu að fylgjast grannt með.Baltasar hefur hlotið mörg verðlaun fyrir kvikmyndir sínar. Nú síðast hlaut verðlaun á CinemaCon-hátíðinni sem besti kvikmyndagerðamaður utan Bandaríkjanna. Hátíðin er haldin af samtökum bandarískra kvikmyndahúsa. Þegar verðlaunin voru afhent var myndband með ýmsum Hollywood stjörnum leikið, þar sem Balti var lofaður. Meðal annars notaði Jake Gyllenhal orðið „badass“ til að lýsa íslenska leikstjóranum. Mark Wahlberg sagði að Baltasar ætti verðlaunin skilið og fleiri væru á leiðinni.
Mest lesið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Lífið Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Tónlist „Það er engin skömm í krabbameininu“ Lífið Urður yfirgefur Kastljós Lífið María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu Tíska og hönnun Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Lífið Fleiri fréttir Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Sjá meira