Körfubolti

Íslenska liðið í plús þegar Haukur og Jón Arnór voru inná

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson og Haukur Helgi Pálsson.
Jón Arnór Stefánsson og Haukur Helgi Pálsson. Vísir/Valli
Íslenska körfuboltalandsliðið tapaði naumlega með sex stigum á móti Þjóðverjum í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu í körfubolta í gær.

Mótshaldarar halda vel utan um tölfræði leikjanna og það er athyglisvert að skoða tölurnar yfir plús og mínus það er hvernig gekk þegar viðkomandi leikmaður íslenska liðsins var inná vellinum.

Aðeins tveir leikmenn íslenska liðsins komu út í plús í leiknum á móti Dirk Nowitzki og félögum í þýska landsliðinu.

Íslenska liðið vann með fimm stigum þegar Haukur Helgi Pálsson var inná vellinum en Haukur spilaði í 28 mínútur og var með 12 stig á þeim.

Íslenska liðið vann síðan með einu stigi þegar Jón Arnór Stefánsson var innávellinum en Jón Arnór var með 23 stig á þeim 29 mínútum sem hann spilaði í gær.

Bæði Haukur og Jón Arnór lentu í villuvandræðum og hefði eflaust spilað meira ef væri ekki vegna þeirra. Þeir enduðu báðir með fjórar villur og gátu því klárað leikinn en íslenska liðið sótti mikið að Þjóðverjunum í lokaleikhlutanum.

Plús og mínus í fyrsta leiknum:

+5 Haukur Helgi Pálsson (28 mínútur)

+1 Jón Arnór Stefánsson (29)

0 Ragnar Nathanaelsson (2 sekúndur)

-1 Hörður Axel Vilhjálmsson (27)

-2 Axel Kárason (1)

-2 Logi Gunnarsson (19)

-2 Ægir Þór Steinarsson (1)

-4 Helgi Már Magnússon (2)

-5 Pavel Ermolinskij (24)

-6 Martin Hermannsson (14)

-7 Jakob Örn Sigurðarson (21)

-7 Hlynur Bæringsson (35)


Tengdar fréttir

Hörður Axel: Við erum engir túristar í Berlín

Hörður Axel Vilhjálmsson átti frábæran leik í vörninni þegar Íslands tapaði naumlega með sex stigum á móti Þjðoðverjum í fyrsta leik sínum á Eurobasket 2015.

Serbar frábærir í sigri á Spánverjum

Serbía vann tíu stiga sigur á Spánverjum, 80-70, í öðrum leik dagains í riðli Íslands á Evrópumótinu í körfubolta í Berlín.

Dramatískur sigur Tyrklands

Tyrkland vann dramatískan sigur á Ítalíu í riðli okkar Íslendinga á EM 2015, en riðillinn fer fram í Berlín. Tyrkir unnu tveggja stiga sigur, 89-87, eftir dramatískar lokamínútur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×