Körfubolti

Strákarnir mæta þremur frægum NBA-leikmönnum í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Marco Belinelli, Danilo Gallinari og Andrea Bargnani.
Marco Belinelli, Danilo Gallinari og Andrea Bargnani. Vísir/Getty
Íslenska körfuboltalandsliðið mætir Ítalíu í kvöld í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í körfubolta en bæði lið töpuðu naumlega í fyrsta leik sínum í B-riðlinum í Berlin. Ísland á móti Þýskalandi en Ítalir á móti Tyrkjum.

Í liði Ítala eru þrír frægir NBA-leikmenn en þetta eru allt leikmenn sem hafa spilað lengi í NBA og hafa vakið athygli fyrir góðan leik.

Danilo Gallinari (Denver Nuggets), Andrea Bargnani (Brooklyn Nets) og Marco Belinelli (Sacramento Kings) hafa allir skapað sér nafn í NBA-deildinni og það verður erfitt verkefni fyrir íslensku vörnina að reyna að stoppa þá í leiknum í dag.

Danilo Gallinari átti frábæran leik á móti Tyrkjum í gær en hann skoraði þá 33 stig eftir að hafa hitt úr 9 af 10 skotum sínum utan af velli og 14 af 15 skotum sínum af vítalínunni.

Marco Belinelli skoraði 14 stig og gaf 4 stoðsendingar í leiknum en hitti reyndar aðeins úr 2 af 8 þriggja stiga skotum sínum.

Andrea Bargnani var með 12 stig og 4 fráköst en Ítalir töpuðu með tíu stigum þær 22 mínútur sem hann spilaði. Bargnani var ekki í byrjunarliði Ítala á móti Tyrkjum í gær.

Danilo Gallinari í leik með Denver.Vísir/Getty
Danilo Gallinari er 27 ára og 208 sentímetra framherji sem hefur spilað með Denver Nuggets frá 2011. Hann kom inn í NBA-deildina 2008 eftir að hafa verið valinn sjötti í nýliðavalinu af New York Knicks.

Gallinari er með 14,2 og 4,5 fráköst að meðaltali í 344 leikjum sínum í NBA-deildinni en hans besta tímabil var 2012-13 (16,2 stig og 5,2 fráköst). Hann missti af 2013-14 tímabilinu vegna meiðsla (krossbandsslit).

Andrea Bargnani í leik með New York.Vísir/Getty
Andrea Bargnani er 29 ára og 213 sentímetra miðherji. Hann var valinn fyrstur af Toronto Raptors í nýliðavainu 2006 og lék með liðinu til 2013. Undanfarin tvö tímabil hefur hann spilað með New York Knicks en hann samdi við Brooklyn Nets í sumar.

Bargnani er með 15,0 og 4,8 fráköst að meðaltali í 504 leikjum sínum í NBA-deildinni en hans besta tímabil var 2010-11 (21,4 stig og 5,2 fráköst).

Marco Belinelli í leik með San Antonio.Vísir/Getty
Marco Belinelli er 29 ára og 196 sentímetra skotbakvörður sem varð meðal annars NBA-meistari með San Antonio Spurs árið 2014. Hann yfirgaf Spurs í sumar og samdi við Sacramento Kings.

Marco Belinelli er eini Ítalinn sem hefur orðið NBA-meistari en í úrslitakeppninni 2014 var hann með 5,4 stig í leik og 42,1 prósent þriggja stiga skotnýtingu.

Sacramento Kings verður hans sjötta NBA-lið en hann hefur einnig spilað með Golden State Warriors, Toronto Raptors, New Orleans Hornets, Chicago Bulls og svo San Antonio Spurs.

Belinelli er með 9,4 stig og 39 prósent þriggja stiga skotnýtingu í 502 leikjum sínum í NBA-deildinni en hans besta tímabil var 2011-12 (11,8 stig). Belinelli vann þriggja stiga skotkeppni Stjörnuleikshelgarinnar árið 2014.



Leikur Íslands og Ítalíu hefst klukkan 16.00 að íslenskum tíma en fylgst verður með gangi máli hér inn á Vísi.


Tengdar fréttir

Hörður Axel: Við erum engir túristar í Berlín

Hörður Axel Vilhjálmsson átti frábæran leik í vörninni þegar Íslands tapaði naumlega með sex stigum á móti Þjðoðverjum í fyrsta leik sínum á Eurobasket 2015.

Jón Arnór: Aldrei verið jafn stressaður fyrir leik á ævinni

Jón Arnór Stefánsson, stórstjarna íslenska körfuboltalandsliðsins, var svekktur í lokin á leik Íslands og Þýskalands. Ísland tapaði með sex stiga mun, 71-65, í hörkuleik, en þetta var fyrsti leikur Íslands á Eurobasket.

Dramatískur sigur Tyrklands

Tyrkland vann dramatískan sigur á Ítalíu í riðli okkar Íslendinga á EM 2015, en riðillinn fer fram í Berlín. Tyrkir unnu tveggja stiga sigur, 89-87, eftir dramatískar lokamínútur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×