Máli Tchenguiz gegn Kaupþingi vísað frá en Jóhannes þarf að grípa til varna Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 1. júlí 2015 18:00 Vincent Tchenguiz og Jóhannes Jóhannsson. Vísir
Undirréttur í Englandi komst í dag að þeirri niðurstöðu að Vincent Tchenguiz gæti ekki höfðað mál gegn Kaupþingi þar í landi þar sem málshöfðunin væri brot á íslenskum lögum sem gilda um slitameðferð Kaupþings. Lögum þessum ber að beita í Englandi á grundvelli Evróputilskipana um slit fjármálafyrirtækja sem gilda í þessu tilfelli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kaupþingi og Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni. Málavextir eru þeir að í nóvember 2014 höfðuðu Vincent Tchenguiz og tengdir aðilar dómsmál í Englandi gegn Kaupþingi hf, Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni hæstaréttarlögmanni sem á sæti í slitastjórn Kaupþings, Grant Thornton UK LLP og tveimur eigendum þess þar í landi. Kröfur Tchenguiz eru sagðar tilkomnar vegna meintrar aðkomu slitastjórnar Kaupþings að rannsókn breskra lögregluyfirvalda á Vincent Tchenguiz og bróður hans sem leiddu til húsleitar og handtöku hans í mars 2011. Vincent Tchenguiz gerði skaðabótakröfu sem hljóðar upp á 2,2 milljarða sterlingspunda, sem nemur ríflega 455 milljörðum íslenskra króna.Sjá einnig: Tchenguiz vill 400 milljarða frá Kaupþingi, Jóhannesi og fleirum Kaupþing og Jóhannes Rúnar kröfðust í janúar frávísunar á þeim grundvelli að enskir dómstólar hefðu ekki lögsögu til að fjalla um málið. Stefnu Tchenguiz á hendur Grant Thornton var vísað frá í febrúar á þessu ári meðal annars vegna þess að dómurinn taldi málatilbúnað Tchenguiz of óskýran.Telur málshöfðunina tilraun til óeðlilegs ávinning af slitum bankans Þrátt fyrir að undirréttur hafi vísað frá máli Tchenguiz á hendur Kaupþingi í dag gildir ekki það sama um málið á hendur Jóhannesi Rúnari og mun efnismeðferð í málinu hvað hann varðar því fara fram ytra. Úrskurður dómsins felur ekki í sér nokkurn dóm á efnishlið málsins. „Ég er mjög ánægður með niðurstöðu enskra dómstóla varðandi Kaupþing. Að mínu mati eru þessar kröfur lítt dulin tilraun Vincent Tchenguiz til að tryggja sjálfum sér og tengdum skuldurum óeðlilegan ávinning við slit Kaupþings. Skuld þessara aðila við Kaupþing nemur meira en 143 milljónum sterlingspunda, sem jafngildir um 30 milljörðum íslenskra króna,“ sagði Jóhannes Rúnar í tilkynningu sem hann sendi til fjölmiðla. „Skuldin er tryggð með persónulegri ábyrgð Vincent Tchenguiz að fjárhæð 10 milljónir sterlingspunda, sem jafngildir meira en 2 milljörðum króna.Sjá einnig: Skaðabótamál Tchenguiz tekið fyrir á Englandi Eins og ég hef þegar gefið skýrslu um til réttarins í Englandi, þá er það fjarstæðukennt að ég hafi tekið þátt í meintu samsæri eða öðrum ólögmætum athöfnum líkt og borið er í stefnu málsins. Ég endurtek að þær ásakanir sem gerðar eru á hendur mér eiga sér enga stoð í raunveruleikanum og eru með öllu ósannar. Rannsóknir erlendra lögregluyfirvalda og handtaka Vincent Tchenguiz eru ákvarðanir sem teknar voru af þeim og á þeirra ábyrgð og hvorki ég né Kaupþing leituðumst nokkru sinni við að koma slíkum aðgerðum í kring. Ég mun verjast öllum kröfum áður nefndra aðila af festu enda kröfur þeirra tilhæfulausar með öllu og allar sakargiftir rangar. Ef Vincent Tchenguiz og tengdir aðilar kjósa að halda kröfum á hendur mér til streitu er ég þess fullviss að enskir dómstólar muni sýkna mig af öllum kröfum sem hafðar eru uppi á hendur mér.”
Tengdar fréttir Tchenguiz vill 400 milljarða frá Kaupþingi, Jóhannesi og fleirum Bresk-íranski fasteignamógúllinn Vincent Tchenguiz hefur höfðað 2,2 milljarða punda skaðabótamál á hendur Grant Thornton, slitastjórn Kaupþings og Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni. 27. nóvember 2014 18:21 Tchenguiz íhugar að stefna Kaupþingi Kaupsýslumaðurinn Vincent Tchenguiz, sem breska efnahagsbrotadeildin, SFO, var með til rannsóknar vegna viðskipta hans við íslenska bankann Kaupþing, hefur fengið leyfi dómara til að láta óháð teymi lögfræðinga fara yfir öll skjöl sem tengdust málinu til að athuga hvort grundvöllur sé fyrir því að hann fari í mál vegna misbresta á rannsókninni. 11. ágúst 2014 08:00 Efnhagsbrotadeildin greiðir Tschenguiz tæpar 300 milljónir króna Máli Tschenguiz-bræðra er nú formlega lokið í kjölfar samkomulags við SFO um skaðabótagreiðslu og fallið hefur verið frá réttarhöldum sem áttu að hefjast í október. 31. júlí 2014 10:31 Kannast ekki við kröfu Tchenguiz Slitastjórn Kaupþings segir hvorki bankann né Jóhannes Rúnar Jóhannsson hafa fengið gögn eða upplýsingar um kröfu Vincent Tchenguiz. 27. nóvember 2014 23:19 Mest lesið Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira
Tchenguiz vill 400 milljarða frá Kaupþingi, Jóhannesi og fleirum Bresk-íranski fasteignamógúllinn Vincent Tchenguiz hefur höfðað 2,2 milljarða punda skaðabótamál á hendur Grant Thornton, slitastjórn Kaupþings og Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni. 27. nóvember 2014 18:21
Tchenguiz íhugar að stefna Kaupþingi Kaupsýslumaðurinn Vincent Tchenguiz, sem breska efnahagsbrotadeildin, SFO, var með til rannsóknar vegna viðskipta hans við íslenska bankann Kaupþing, hefur fengið leyfi dómara til að láta óháð teymi lögfræðinga fara yfir öll skjöl sem tengdust málinu til að athuga hvort grundvöllur sé fyrir því að hann fari í mál vegna misbresta á rannsókninni. 11. ágúst 2014 08:00
Efnhagsbrotadeildin greiðir Tschenguiz tæpar 300 milljónir króna Máli Tschenguiz-bræðra er nú formlega lokið í kjölfar samkomulags við SFO um skaðabótagreiðslu og fallið hefur verið frá réttarhöldum sem áttu að hefjast í október. 31. júlí 2014 10:31
Kannast ekki við kröfu Tchenguiz Slitastjórn Kaupþings segir hvorki bankann né Jóhannes Rúnar Jóhannsson hafa fengið gögn eða upplýsingar um kröfu Vincent Tchenguiz. 27. nóvember 2014 23:19