Formúla 1

Rosberg: Ég reyndi of mikið og því fór sem fór

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Topp þrír í tímatökunni í Austurríki.
Topp þrír í tímatökunni í Austurríki. Vísir/Getty
Lewis Hamilton tryggði Mercedes 19. ráspól liðsins í röð í Austurríki í dag. Þetta er orðin önnur lengsta röð ráspóla í sögu Formúlu 1. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari þriðji. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

„Erfið tímataka fyrir alla í dag. Þegar ég fór útaf var fyrsta hugsun að passa að bíllinn færi ekki illa út úr þessu,“ sagði Hamilton.

„Ég var búinn að vinna upp bilið í Lewis en bara nákvæmlega mig vantaði ögn meira og ég reyndi aðeins of mikið og því fór sem fór,“ sagði Rosberg. Þjóðverjinn hefði sennilega náð ráspól ef ekki hefði verið fyrir mistök í síðustu beygju.

„Auðvitað hefðum við viljað vera nær. Allir bílar með Mercedes vél virðast hafa fengið ögn meira afl. Við skulum sjá hvað verður á morgun,“ sagði Vettel.

Felipe Massa sem var á ráspól í fyrra ræsir fjórði á morgun, hvað ætli hann geti gert þaðan?Vísir/Getty
„Ég er nokkuð sáttur, við áttum ögn meira inni en maður veit aldrei í þessum aðstæðum. Á þessari braut gildir að byrja á réttri línu þá smellur hitt saman,“ sagði Felipe Massa á Williams sem ræsir fjórði á morgun.

„Þetta var erfið tímataka, ég var frekar óheppinn með umferð og gul flögg. En það getur allt gerst á morgun. Ég ætla að vera á veiðum,“ sagði Valtteri Bottas á Williams sem á morgun ræsir sjötti.

„Ég bjóst ekki við þessu, gerði ráð fyrir að komast í topp tíu baráttuna en fimmta sætið kom skemmtilega á óvart. Við höfum lært mikið á bílinn og við náðum góðri uppstillingu,“ sagði Nico Hulkenberg sem ræsir fimmti á morgun á Force India bílnum.

„Leiðinlegt að detta út í fyrstu lotu en ég held við eigum möguleika á stigasæti á morgun,“ sagði Sergio Perez sem kom Force India bílnum ekki nógu hratt í dag til að komast áfram í aðra lotu.


Tengdar fréttir

Button: Vonandi verður Alonso fljótari en ég

Jenson Button ökumaður McLaren liðsins í Formúlu 1 lýsti því yfir á blaðamannafundi í dag að hann vonaði að liðsfélagi sinn, Fernando Alonso yrði fljótari en hann um helgina.

Massa: Mikilvægt að setja pressu á Ferrari

Felipe Massa annar ökumanna Williams liðsins í Formúlu 1 segir að það sé mikilvægt fyrir liðið að setja pressu á Ferrari í nánustu framtíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×