Ómótstæðileg frönsk súkkulaðikaka Berglindar Rikka skrifar 10. júní 2015 15:15 visir/berglind
Berglind Guðmundsdóttir matarbloggari og eigandi síðunnar Gulur, rauður, grænn og salt gefur lesendum Matarvísi uppskrift af sinni eftirlætisköku. Eins og sést á myndinni þá er kakan hreint út sagt ómótstæðileg.Frönsk súkkulaðikaka80 g smjör100 g suðusúkkulaði3 egg3 dl sykur1 tsk vanilludropar1 ½ dl hveiti1 tsk salt Stillið ofninn á 175°C með blæstri. Bræðið saman smjör og súkkulaði í potti við vægan hita. Þeytið egg og sykur mjög vel saman þar til blandan er létt og ljós. Bætið hveiti og salti varlega saman við eggjablönduna. Bætið súkkulaðinu að lokum út í. Hellið í bökunarform (ég notaði 22cm) og bakið í 15 mínútur í ofninn. Gerið karmellusósuna á meðan. Eftir 15 mínútur takið þá kökuna þá úr ofninum stráið pekanhnetum yfir og hellið síðan karmellusósunni yfir allt og látið aftur inn í ofn í 20 mínútur. Þegar kakan er komin úr ofninum stráið þá söxuðu súkkulaði yfir hana.Karmellusósa60 g smjör1 dl púðursykur2 msk rjómi100 g pekanhnetur, grófsaxaðar100 g suðusúkkulaði, saxað Bræðið púðursykri og smjöri saman í potti. Þegar þetta hefur blandast vel saman, bætið þá rjómanum út í og hrærið í um mínútu.Stundum leik ég mér með það á hvaða tímapunkti ég læt karmelluna yfir. Stundum eftir 15 mínútur og stundum þegar að 5-10 mínútur eru eftir að baksturtíma. Hún breytir aðeins um áferð við það en er sjúklega góð hvernig sem er.
Eftirréttir Kökur og tertur Súkkulaðikaka Uppskriftir Mest lesið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Bíó og sjónvarp Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið